153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:01]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég get ekki annað en verið sammála og rétt eins og hv. þingmaður nefndi get ég líka heldur ekki annað en verið stoltur yfir því að hingað skuli hafa komið fólk á flótta frá stríðinu í Úkraínu. Sú umræða sem við værum með í dag hér inni í þessum sal væri allt, allt önnur ef það væri ekki að gerast. Ég hef líka bent á það að fyrir 40–50 árum tókum við yfir 5.000 manns á einum degi, á einni nóttu. Þau komu ekki frá öðru landi þó svo að Heimaey eða Suðurey vilji stundum kannski fá að vera sjálfstæð frá okkur Íslendingum. Við getum tekið við eins mörgum í neyð og við þurfum vegna þess að sem samfélag gerum við það.

Við þurfum að tala um stærri myndina. Hvað er þetta fólk að flýja? Þetta fólk er að flýja ástand eins og er í Úkraínu, stríð. Við erum búin að sjá stríð í Sýrlandi. Við erum búin að sjá mjög harðnandi átök í Palestínu. Við erum búin að sjá samfélag hreinlega riða til falls, þar sem stjórnarandstæðingar eru lögsóttir og drepnir á götum úti eins og við sjáum í Venesúela. Í Afganistan þar sem yfir 20 ár af valdbeitingu og öðru frá þjóðum eins og okkar samstarfsþjóðum, og Ísland tók þátt í því erum við að sjá áhrif þess að það féll allt saman og talibanar hafa tekið yfir. Þetta er stóra myndin. (Forseti hringir.) Við erum að taka á móti fólki í neyð og við þurfum að halda áfram að taka á móti fólki í neyð (Forseti hringir.) því við erum þjóð sem er byggð af flóttamönnum frá frændum okkar Norðmönnum.