153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:04]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P):

Virðulegur forseti. Að þessu sinni sé ég sérstaka ástæðu til að þakka fyrir umræðuna sem fór fram hér á undan. Það gerist ekki í hverri einustu ræðu en nú vill svo til að ég ætlaði einmitt að fara að tala um Úkraínu og hvernig hún hefur breytt landslaginu og hvað það setur þetta frumvarp í frekar hjákátlegt samhengi og í rauninni þessi flóttamannamál yfir höfuð, af því það kerfi sem við höfum búið við byggist að miklu leyti á samevrópsku samstarfi sem snýst svolítið um að reisa girðingar í kringum Evrópu þar sem er síðan reynt að velta ábyrgðinni á því að taka við umsóknum flóttafólks á löndin sem eru á jaðrinum, Grikkland, Ítalíu og Ungverjaland og fleiri Austur-Evrópuríki. Þetta er ekki algilt. Ríki hafa svigrúm til túlkunar. Sum ríki eins og Þýskaland hafa verið mjög dugleg við að bjóða flóttafólk velkomið. Við höfum svolítið verið að beita þessu mikið og stíft, að senda fólk til annarra ríkja.

Þetta er ekki bara almenn umræða því það má hæglega setja þetta í samhengi við frumvarpið sem hér er til umræðu, af því að grein sem hefur verið rakin hér og verið komið inn á áður, sem er b-liður 8. gr. í frumvarpinu, fjallar um aukna heimild til að láta ríki sem eðlilegt geti talist að eigi að bera ábyrgð á fólki taka við fólki. Ég segi um það enn og aftur: Mér finnst mjög óljóst að hverju er miðað með þessu ákvæði, að hverju þetta mun beinast. Eru þetta ríkin í kringum Venesúela? Eru þetta önnur ríki? Mun þetta leiða til þess að það sé horfið frá núverandi stefnu sem er í gildi um að ef fólk kemur í gegnum Grikkland eða Ungverjaland að þá hafi það rétt á að sækja um vernd hér? Ég held einmitt að þessi innrás í Úkraínu, sem er inn fyrir Evrópu, og hvað þetta kemur meira inn í bakgarðinum okkar allra en nokkru sinni áður, sýni svolítið að þessi viðleitni til að skipta svona upp og slá upp einhverjum girðingum sé óhjákvæmilega að líða svolítið fyrir það og að hin almenna stefna þurfi svolítið að breytast.

Mér fannst síðan, svo ég vísi aftur í fyrri ræðu, mjög gott hjá hv. þm. Halldóru Mogensen að tala um óttann og hvernig hann stjórnar oft, af því að í þessu virðist hann mjög oft stjórna og er oft gripið til hans frekar en raka eða gagna eða einhvers sem hönd á festir, um að ef við slökum á hér þá opnist einhverjar flóðgáttir og af því að allir aðrir séu að halda að sér þá megum við ekki vera öðruvísi. Þarna er enn og aftur hægt að vísa svolítið til Úkraínu og skoða tölfræði. Ég er ekki búinn að kafa ofan í það en ég geri ráð fyrir að flest ríki, alla vega í Evrópu og hér í kring, séu að gera það sama og við, að taka fólki opnum örmum. Þá er þetta mjög góð í raun tilraun eða prófsteinn, jafnvel svona empírísk tilraun um það hvað gerist þegar öll ríki opna, hvernig þetta dreifist í raun. Hér er talað um segla og að við séum með miklu betri segla en aðrir. Þetta er, ef eitthvað, einn áreiðanlegasti, mælanlegi mælikvarði sem við höfum og þar erum við í meðallagi eða jafnvel aðeins neðarlega þegar kemur að fjölda flóttafólks frá Úkraínu á höfðatölu. Ég hvet fólk til að skoða það aðeins og kynna sér.