útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég vék að því í ræðu minni áðan að fyrst að ekki var tekið mark á þessum ótal umsögnum sem komu fram þá myndi ég gera grein fyrir þeim hér og ég ætla að lesa hérna upp úr umsögn Amnesty International, með leyfi forseta:
„Íslandsdeild Amnesty International hefur borist framangreint frumvarp til umsagnar. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga var lagt fram á 149. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Það var endurflutt með nokkrum breytingum á 150., 151. og 152. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Íslandsdeild Amnesty International skilaði inn umsögn um framangreind frumvörp þegar þau voru lögð fram á 150., 151. og 152. löggjafarþingi þar sem gerðar voru alvarlegar athugasemdir við nokkur ákvæði frumvarpsins. Íslandsdeild Amnesty International gerði nokkrar alvarlegar athugasemdir við ákvæði frumvarpsins þegar það var í samráðsgátt Stjórnarráðsins í febrúar sl. Sum þeirra ákvæða eru óbreytt í frumvarpinu sem nú er lagt fram en önnur hafa tekið einhverjum breytingum. Deildin vill ítreka fyrri athugasemdir að breyttu breytanda. Gerðar eru eftirfarandi athugasemdir:
2. gr. frumvarpsins: Synjun sæti sjálfkrafa kæru.
Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að ákvarðanir Útlendingastofnunar um synjun á efnislegri meðferð á grundvelli 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 (útl.) sæti sjálfkrafa kæru til kærunefndar útlendingamála nema umsækjandi óski sérstaklega að svo verði ekki. Þá er gerð sú krafa að greinargerð vegna kæru berist kærunefnd útlendingamála innan 14 daga frá birtingu ákvörðunarinnar.
Gagnaöflun vegna kæru er háð afhendingu gagna frá Útlendingastofnun sem gefur sér að lágmarki 10 virka daga til þess að afhenda skjöl. Það sama á við um gagnaöflun frá öðrum stjórnvöldum og aðilum almennt. Sú staðreynd að umsækjendur geta ekki treyst því að gögn verði afhent þeim með stuttum fyrirvara á meðan mál þeirra sæta sjálfkrafa kæru mun leiða til þess að umsækjendur um alþjóðlega vernd verða ófærir um að undirbúa viðunandi málsvörn og að mál þeirra sé nægjanlega upplýst í skilningi rannsóknarreglu stjórnsýslulaga þegar ákvörðun er tekin. Tillögð lagabreyting felur í sér áhættu um að þessi málaflokkur verði sá eini sem lýtur málsmeðferð innan stjórnsýslunnar þar sem málsaðilum er ekki tryggður sá kostur að njóta réttar síns til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns í skilningi 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Miðað við ofangreint mun ákvæðið leiða til verulegrar skerðingar á réttarvernd umsækjenda um alþjóðlega vernd. Mikilvægt er að aukin skilvirkni komi ekki niður á réttaröryggi umsækjenda. Íslandsdeild Amnesty International leggur því eindregið til að fallið verði frá þeirri breytingu sem 2. gr. frumvarpsins felur í sér.
6. gr. frumvarpsins: Heimild til að skerða eða fella niður grunnþjónustu.
Í 6. gr. frumvarpsins er lagt til að 8. mgr. 33. gr. laganna orðist svo að útlendingur sem fengið hafi endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd njóti áfram réttinda samkvæmt greininni þar til hann hafi yfirgefið landið en þó að hámarki í 30 daga frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Að þeim tímafresti loknum falli réttindin niður. Þau réttindi sem fjallað er um í 33. gr. eru grundvallarmannréttindi og snúa að grunnþörfum fyrir fæði, húsnæði og nauðsynlega heilbrigðisþjónustu auk þess sem börnum á grunnskólaaldri er tryggður réttur til menntunar. Með því að heimila skerðingu á slíkri grunnþjónustu er hætt við því að alvarleg vandamál skapist og velferð fólks sé stefnt í hættu. Mikilvægt er að tryggja að einstaklingar fái notið mannréttinda sinna að fullu þegar fyrir liggur framkvæmdarhæf ákvörðun í málum þeirra, sérstaklega í ljósi þess að slík ákvörðun kemur oft ekki til framkvæmda svo mánuðum skiptir. Sá sem bíður endursendingar nýtur þá hvorki réttar til almennrar félagsþjónustu né hefur hér atvinnurétt nema að ströngum skilyrðum uppfylltum.
Tillögð skerðing eða niðurfelling á þjónustu er varðar grunnvelferð fólks felur í sér alvarleg vandamál þar sem fólki er ekki tryggð lágmarksframfærsla né réttur til húsnæðis á nokkurn hátt. Þá verður að leggja áherslu á mikilvægi þess að fólk njóti grunnheilbrigðisþjónustu á meðan það dvelur hér á landi. Þau réttindi sem hér um ræðir eru meðal annars tryggð í samningi Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, sem Ísland er aðili að og hefur fullgilt, auk barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem hefur verið lögfestur á Íslandi.“
Ég mun halda áfram í næstu ræðu.