útlendingar.
Forseti. Nú hafa komið 27 umsagnir við þetta frumvarp sem við ræðum hérna, útlendingamálið. Þær eru nánast allar neikvæðar, vara við þessu máli. Það eru rauð flögg út um allt og nýjasta umsögnin til að detta inn kemur frá Samtökunum '78, datt bara inn á gáttina í dag. Mig langar dálítið að lesa hana, mér finnst þetta vera mikilvæg umsögn, með leyfi forseta:
„Samtökin '78 setja mikla fyrirvara við stjórnarfrumvarp dómsmálaráðherra sem nú er til meðferðar hjá allsherjar- og menntamálanefnd.
Samtökin '78 telja enga af þeim breytingum sem lagðar eru til, til þess fallnar að tryggja réttláta málsmeðferð hinsegin fólks sem leitar að alþjóðlegri vernd. Í núgildandi lögum er lítið sem ekkert fjallað um hinsegin fólk sem leitar að alþjóðlegri vernd, þrátt fyrir að sá hópur falli undir viðkvæma hópa. Í lögskýringartexta við þau lög var þó tæpt á hinseginleika en það er ekki gert í þessari breytingartillögu.
Samtökin 78 setja sérstaklega fyrirvara við eina grein í þessum breytingum. Í 15. gr. frumvarpsins er lagt til að undanþáguákvæði a-liðar 4. mgr. 70. gr. laganna eigi ekki við um umsókn um fjölskyldusameiningu við útlending sem hefur verið boðið hingað til lands af stjórnvöldum skv. 43. gr. laganna. Samtökin '78 hafa miklar áhyggjur af þessari breytingu þar sem það er afar ólíklegt að manneskja sem komi frá landi þar sem t.d. samkynhneigð eða tvíkynhneigð er refsiverð greini fyrir fram frá því að eiga maka af sama kyni. Fólk vill einmitt finna fyrir öryggi áður en það upplýsir yfirvöld um samkynja samband sitt, vegna mikils vantrausts í garð stjórnvalda.
Samtökin '78 vilja einnig benda á að einstaklingar sem leita til samtakanna hafa ítrekað þurft að sannreyna sinn hinseginleika og sum hafa þurft að ganga ansi langt til að reyna að sýna fram á það að þau vissulega tilheyri þeim hópi. Slík vinnubrögð eru að mati Samtakanna '78 ófagleg og til þess fallin að brjóta á mannréttindum þessara einstaklinga. Eins hafa einstaklingar sem leita til samtakanna verið beitt miklu ofbeldi af hálfu yfirvalda í heimalandi sínu, vegna hinseginleika síns, og eðlilega treysta þá ekki stjórnvöldum neins staðar til að opinbera hinseginleika sinn. Vegna þessa þá þarf að byggja upp traust og því fullkomlega eðlilegt að einstaklingur segi ekki frá hinseginleika sínum í fyrsta viðtali.
Það hefði mátt fara í skoðun á því hvernig málsmeðferð hinsegin fólks sem leitar að alþjóðlegri vernd er almennt á Íslandi svo að það mat gæti verið grunnur að breytingum á lögum um útlendinga. Það var ekki gert við breytingar á þessum lögum.
Það er ansi margt sem má bæta í lögum um útlendinga til að virða mannréttindi minnihlutahópa, en þessi breyting nær ekki til þeirra þátta og eru að mati Samtakanna '78 ekki til bóta. Jafnframt má færa rök fyrir því að þau séu skref aftur á bak þegar kemur að hinsegin fólki, með vísan til breytinga á 15. gr. laganna.“
Forseti. Þessi umsögn er ein af mörgum sem flagga því hversu lítið samráð — eða bara algjöran skort á samráði við þá aðila í samfélaginu okkar, samtök sem hafa sérfræðiþekkingu og eiga að sjálfsögðu að koma að gerð svona frumvarps alveg frá byrjun, frá upphafi, þegar það er verið að hugsa þetta, þegar verið er að þarfagreina og svo fara í þá vinnu að finna lausnir sem henta og passa upp á að það sé verið að ná utan um sem flesta þjóðfélagshópa, þá á að sjálfsögðu að kalla sem flesta að borðinu til þess að fá þeirra innsýn og sérfræðiþekkingu inn í málaflokkinn svo að þessi samtök geti sinnt sínu hlutverki sem er að standa vörð um hagsmuni, eins og Samtökin '78, viðkvæmra hópa.
Það er raunverulega til skammar að það hafi ekki verið gert og mér finnst það eitt og sér að vera nóg til þess að henda þessu á ruslahaugana og byrja upp á nýtt, í alvöru. Þetta er svo ófaglegt en ekki bara það, það er svo mikill hroki sem felst í því að við skulum hérna — og þetta er ekki eina frumvarpið sem er svona, þetta er bara hluti af mynstri sem ég sé hérna trekk í trekk, að það eru alltaf að koma hérna fram frumvörp sem eru svo illa unnin og svo illa hugsuð, bara út af því að einhverjum ráðherra datt í hug að þetta væri mögulega sniðug nálgun á þetta eða út af því að það endar með því að það þarf að málamiðla málið svo svakalega mikið að það er algjörlega búið að missa allan kontext og alla stefnu, ef það var einhver stefna, til að reyna að finna lausnir til að nálgast þau markmið sem frumvarpið á að ná. Það er bara tapað, týnt í einhverju svona skítamixi, afsakið orðbragðið. Þetta er ógeðslega vond nálgun á lagagerð. Hún tryggir það raunverulega að fólk verður alltaf undir. Við verðum að standa vörð um mannréttindi. Við getum ekki kallað okkur lýðræðisríki að sönnu nema við tökum þetta hlutverk okkar alvarlega, að standa vörð um mannréttindi og það á við um alla, ekki bara einhvern einn þjóðfélagshóp fram yfir annan aðra. Það á við alla, líka fólk á flótta, útlendinga, alla.
Það er ótrúlega mikið af góðum umsögnum sem hafa komið fram sem virðast eiga að vera hunsaðar. Við erum nýkomin úr nefndaviku þar sem nefndir fengu það hlutverk að vinna að málum sem hafa verið send til þeirra. Allsherjar- og menntamálanefnd er með þetta mál og það var unnið í þessu máli í nefndavikunni. Þar er ekkert verið að taka tillit til þessara gífurlega mörgu athugasemda sem hafa komið fram í umsögnum við þetta mál. Þetta mál er nýkomið í 2. umr. úr þessari nefndaviku og þá fáum við fregnir af því að þingflokkur Vinstri grænna vilji gera breytingar á málinu, en ekki fyrr en eftir 2. umr. En það vill enginn koma hingað upp og tjá sig um það hvað er verið að hugsa, hvernig breytingar á að gera. Hverju megum við búast við? Það er ekkert samtal við þingið, við aðra flokka, við stjórnarandstöðuna, um hvernig meiri hlutinn er að hugsa þetta mál. Þannig að auðvitað stöndum við hér, við ítrekum áhyggjur okkar, við lesum þessar umsagnir, ég ætla að halda áfram að gera það, 27 umsagnir, og þær eru gríðarlega langar, díteilaðar, flóknar, afsakið enskuslettuna, og mikilvægar, mikið af góðum upplýsingum sem koma þar fram og mér þykir það til skammar að þessar athugasemdir, þessar áhyggjur, þessar réttmætu áhyggjur, séu hunsaðar.
Mannréttindaskrifstofa Íslands er með nokkra mjög mikilvæga punkta í sinni umsögn og aftur, áréttar skort á samráði og vísar þar til yfirlýsingar 15 samtaka. Þetta eru ótrúlega margir mikilvægir aðilar, mikilvæg samtök, mikilvægar raddir sem eru að kalla á okkur, á þingið: Hey, kommon, það var ekki haft neitt samráð við okkur, það kom enginn og talaði við okkur. Þetta eigum við samt bara einhvern veginn — æi, það er meirihlutaræði og við þurfum bara að klára þessa umræðu og leyfa ríkisstjórninni að halda áfram sínu fúski. Nei, ég sem Pírati get ekki gúterað það. Það getur ekki verið niðurstaðan. Niðurstaðan hlýtur að vera sú að meiri hlutinn taki þetta mál til sín aftur, að ríkisstjórnin taki þetta mál til sín aftur, og vinni það betur og hunskist til þess að taka tillit til þessara umsagna, þessara 27 umsagna, og breyta þessu þingmáli, þessu frumvarpi, í samræmi við þær umsagnir, og komi svo hér aftur inn á þing og eigi alvörusamtal við okkur ef þau hafa hug á því að þetta mál verði samþykkt hérna.