153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:27]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Helsti gallinn við svo stuttan ræðutíma að maður þarf að búta mál sitt svona niður er sá að í hvert skipti þarf maður að taka af þeim stutta tíma sem maður hefur til að rifja upp fyrir hlustendum hvað maður er að tala um. Ég er sem sagt enn að útskýra fyrir þeim sem hyggjast samþykkja þetta mál þannig að það verði að lögum á Íslandi hvað þau eru að samþykkja. Ég er sannfærð um að þau geri sér ekki fulla grein fyrir því.

Í a-lið 1. gr. frumvarpsins er fjallað um endurteknar umsóknir. Ég ætla að reyna að stytta mál mitt. Ekki er nóg með þær athugasemdir sem ég hef þegar bent á hér á undan, sem eru mínar helstu áhyggjur, þetta eru í rauninni þær breytingar sem ég hef einna mestar áhyggjur af í þessu frumvarpi, heldur gerði Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna í ofanálag athugasemdir við þann þátt ákvæðisins sem ég hefði talið að gæti sloppið. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna er ekki þekkt fyrir það að vera neitt sérstaklega róttæk. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna einbeitir sér að því að tryggja lágmarksréttindi flóttafólks um allan heim, sendir ábendingar til ríkja til að svo megi vera. Það hefur frekar borið á því að Flóttamannastofnunin sé vænd um að ganga ekki nógu langt í sínum kröfum. Því vekur það óneitanlega mikla furðu að þegar Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerir mjög skýrar tillögur að breytingum á þessu frumvarpi, svo að það megi standast flóttamannasamninginn, sé það hunsað með öllu af hálfu meiri hlutans hér á þingi. Ekki það, ég tel mig vita hvers vegna það er og ég mun svo sem tæpa á því hér á eftir.

Ég ætla að byrja á að segja frá því hvað það er sem Flóttamannastofnunin gerir athugasemdir við. Í þessu ákvæði er sem sagt bætt við skilgreiningu í lögin á hugtakinu endurtekin umsókn og það er skilgreint með þessum hætti:

„Þegar útlendingur, sem sótt hefur um alþjóðlega vernd, leggur fram frekari gögn í máli sínu“ — mínar varúðarbjöllur — „eða sækir um alþjóðlega vernd að nýju eftir að hann hefur fengið niðurstöðu í máli sínu.“ — Sem er sá hluti sem er í prinsippinu í samræmi við Evrópureglur en er þó sá hluti sem Flóttamannastofnun gerir athugasemdir við.

Í greinargerð með frumvarpinu segir um þetta ákvæði, með leyfi forseta:

„Lagt er til að bætt verði við skilgreiningu á hugtakinu endurtekin umsókn í 3. gr. laganna. Við skilgreiningu hugtaksins var litið til skilgreiningar sambærilegs hugtaks í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/32/ESB um lágmarkskröfur til málsmeðferðar í aðildarríkjum við veitingu og afturköllun á stöðu flóttamanns. Nánar um endurteknar umsóknir vísast til 7. gr. frumvarpsins og skýringa við það ákvæði.“

Auðvitað vekur athygli að þarna var skilgreiningin sem er í þessari Evróputilskipun ekki tekin upp heldur er litið til hennar. Það var litið til hennar og svo var fundin upp ný skilgreining sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerir athugasemdir við. Í athugasemdum Flóttamannastofnunar, sem hafa verið þýddar á íslensku — reyndar með nokkrum, hvað eigum við að segja, annmörkum á þýðingunni, sem væntanlega má rekja til þess að þýðandinn er sérfræðingur í þýðingum úr ensku yfir á íslensku en kannski ekki endilega í lagahugtökum, ég mun reyna eftir bestu getu að leiðrétta þar sem þörf krefur — segir, með leyfi forseta:

„Samkvæmt tillögunni er nauðsynlegt að samræma íslenskar reglur og verklag við það sem gengur og gerist í öðrum Evrópulöndum hvað varðar endurteknar umsóknir um alþjóðlega vernd og gera þær skilvirkari. Slíkum umsóknum verður vísað frá nema umsækjandinn sé staddur á Íslandi og nýjar upplýsingar í málinu séu tiltækar sem leiði til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að endurtekna umsóknin verði samþykkt.“

Tilvitnun lýkur í bili. Þarna er Flóttamannastofnun sem sagt að rekja þröskuldinn sem settur er fyrir því að endurtekin umsókn sé tekin til greina hér á landi samkvæmt ákvæðinu. Flóttamannastofnun hefur áhyggjur af þessu orðalagi, með leyfi forseta:

„Að mati Flóttamannastofnunarinnar er aðeins réttlætanlegt að meðhöndla umsókn sem endurtekna umsókn ef fyrri umsóknin var tekin til efnislegrar meðferðar, þar sem farið var eftir öllum tilheyrandi réttarfarsreglum. Margar gildar ástæður geta verið fyrir því að umsækjandi leggur fram endurtekna umsókn sem þeir sem ákvörðunina taka þurfa að meta áður en umsókninni er vísað frá. Meðal annars getur verið að breytingar hafi orðið á aðstæðum í upprunalandinu, að annmarkar eða ágallar hafi verið á fyrri málsmeðferð sem komu í veg fyrir fullnægjandi skoðun, áföll eða aðrar hömlur sem komu í veg fyrir ítarlegan vitnisburð frá umsækjandanum í fyrri málsmeðferð eða þá að umsækjandanum hafi áskotnast fleiri sönnunargögn.“

Og þá er tími minn búinn. Ég held áfram í næstu ræðu. Ég óska eftir því við forseta að fá að fara aftur á mælendaskrá.