153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:38]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegi forseti. Mér nægðu engan veginn fimm mínútur til að fara yfir umsögn Amnesty International og ég ætla að halda áfram að gera henni hérna góð skil. Með leyfi forseta held ég áfram þar sem frá var horfið:

„Í greininni segir að ekki sé heimilt að fella niður réttindi alvarlega veikra og fatlaðra einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir. Íslandsdeild hefur gert alvarlegar athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna veikinda eða fötlunar. Svo virðist vera að verulega þröng skilyrði séu sett fyrir því að umsækjendur teljist falla undir að vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá hefur Útlendingastofnun ítrekað vanrækt skyldu sína um að rannsaka hvort einstaklingur teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu og hefur tekið ákvarðanir i málum áður en mikilvæg heilbrigðisgögn hafa borist stofnuninni. Þrátt fyrir umrædda undantekningu á meginreglunni um niðurfellingu þjónustu er líklega í ljósi fyrri reynslu á mati Útlendingastofnunar að breytingin mun samt sem áður bitna harðast á einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Íslandsdeild Amnesty International leggur eindregið til að fallið verði frá þeirri breytingu sem 6. gr. frumvarpsins felur í sér.“

Um 7. gr. frumvarpsins, endurtekin umsókn:

„Í 7. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um sérstaka málsmeðferð svokallaðra endurtekinna umsókna. Í ákvæðinu er lagt til aukaskilyrði um að endurtekinni umsókn skuli vísað frá fylgi henni ekki gögn eða upplýsingar sem leiði til þess að sýnilega auknar líkur séu á að umsækjanda verði veitt vernd, dvalarleyfi hér á landi eða að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar og þau gögn eða upplýsingar hafi ekki legið fyrir við fyrri málsmeðferð.

Viðbótarkrafa um að gögn sýnilega auki líkurnar á vernd er einkum til þess fallin að skapa útilokunarástæður fyrir stjórnvöld til að réttlæta synjun á fleiri umsóknum umsækjenda um alþjóðlega vernd um endurskoðun á máli þeirra og eftir atvikum til að vísa þessum umsóknum frá. Samkvæmt ákvæðinu er 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku ekki ætlað að gilda um ákvarðanir í málum er varða alþjóðlega vernd. Stjórnsýslulög kveða á um lágmarkskröfur til stjórnsýslunnar og að ákvæði í sérlögum geta ekki gengið framar þeim réttindum sem borgurum eru tryggð með ákvæðum laganna. Því er ljóst að tillögð ný málsmeðferð veitir umsækjendum minna réttaröryggi en stjórnsýslulögin þar sem skilyrði fyrir endurtekinni umsókn eru strangari og meira íþyngjandi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd en þau skilyrði sem rakin eru í 24. gr. stjórnsýslulaga. Íslandsdeild Amnesty International leggst eindregið gegn umræddri tillögu.“

Þá vík ég að 8. gr. frumvarpsins, vernd í öðru ríki.

„Í 8. gr. eru lagðar til breytingar á 36. gr. útlendingalaga en sú grein hefur gegnt hlutverki öryggisventils fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, þ.m.t. þeirra sem hafa fengið vernd í öðru Evrópuríki en neyðst til að flýja til Íslands, ýmist vegna sérstakra aðstæðna í þeim ríkjum, sérstaklega Grikklandi, Ítalíu og Ungverjalandi, eða vegna viðkvæmrar stöðu sinnar. Breytingarnar sem gert er ráð fyrir samkvæmt þessu ákvæði virðast hafa það að markmiði að útiloka þá sem þegar hafa fengið vernd í öðrum Evrópuríkjum frá því að fá vernd hérlendis óháð raunverulegum aðstæðum viðkomandi ríkis eða viðkomandi umsækjanda.

Hér er tilefni til að vísa í yfirlýsingu Íslandsdeildar Amnesty International sem gefin var út 16. nóvember sl. en í henni segir m.a.:

„Það er mikið áhyggjuefni að íslensk yfirvöld taka ítrekað umsóknir um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar og senda þess í stað umsækjendur til Grikklands. Aðbúnaður flóttafólks í Grikklandi hefur m.a. verið gagnrýndur af Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Amnesty International. Fjölmargar heimildir, svo sem skýrslur Evrópuráðsins og mannréttinda- og frjálsra félagasamtaka, gefa til kynna að raunverulegri stöðu flóttafólks í Grikklandi sé verulega ábótavant. Í nýlegum úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 513/2021 kemur beinlínis fram að það sé mat hennar að það sé ljóst af fyrirliggjandi gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafi alþjóðlega vernd í Grikklandi … (Forseti hringir.) “

Ég mun víkja að þessu síðar.