útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að tala um orðræðu, hvernig er talað um skjólstæðinga þess kerfis sem þetta frumvarp fjallar um. Hún er m.a. dregin fram í tengslum við frumvarpið og af þeim sem leggur það fram, hæstv. dómsmálaráðherra þegar hann talar um stjórnlaust kerfi og talar um að fólkið sé bara allt komið hingað aftur á framfæri skattgreiðenda — sem reyndist reyndar ekki alveg rétt. Sú staðreynd sýndi svolítið fram á hvaða gögnum, eða skorti á gögnum, hæstv. ráðherra byggir gjarnan sínar ákvarðanir og orðræðu en það er saga út af fyrir sig. Ég verð að segja að mér finnst þessi orðræða mjög afmennskandi. Það er verið að koma fram við fólk eins og viðföng og eitthvert fólk sem er að reyna að sækja alls konar hluti sem það á engan rétt á. Svo er sagt: Þetta frumvarp á að taka á því. Það eru bara þeir sem mega og eiga rétt sem eiga að fá.
Ég og fleiri teljum að það hafi verið rakið ágætlega að þetta stenst ekki skoðun. Ástandið er ekki svona. Hv. þingmaður Gísli Rafn Ólafsson kom inn á það rétt áðan og rakti tölur um það hversu fáir sem koma frá ríkjum sem eru skilgreind sem örugg ríki sækja um og þá staðreynd að öllum er hafnað. Svo hefur verið rætt líka, ég hef t.d. gert það sjálfur, heildartölfræði yfir hafnanir, heildartölfræði yfir hvaða umsóknir eru samþykktar og svo þessi sneið sem er fólk sem er sent annað en það er samt sem áður fólk sem á rétt á vernd. Mér finnst eitt það ógeðslegasta í þessu að enginn greinarmunur sé gerður á þessu gjarnan. Það er bara sagt: Við erum að senda fólk til baka af því að það er að koma hingað en á bara engan rétt. Það á hins vegar rétt þarna og það er verið að reyna að virkja hann þarna.
Það eru réttilega skiptar skoðanir á því að hversu miklu leyti við eigum að vera opin fyrir því að fólk sem getur sótt um vernd annars staðar eða hefur fengið vernd annars staðar eigi að koma hingað. Mér finnst samt lágmark að það sé talað af virðingu af því að þetta er fólk sem er í þeirri í stöðu að eiga rétt á að sækja um, hvar sem það er.
Talandi um stjórnlaust ástand þá er stjórnlausa ástandið hjá ríkisstjórninni. Stjórnlausa ástandið er hjá ríkisstjórn sem getur ekki einu sinni komið hérna og talað fyrir máli sem er búið að fara í gegnum nefnd og er verið að leggja fram, ríkisstjórn sem sendir alls konar misvísandi skilaboð um að þetta verði bara skoðað einhvern veginn betur inni í nefnd aftur. Af hverju lá svona mikið á því að taka þetta út úr nefndinni? Já, það er margt sem þarf að spyrja sig að hér. Ég kem kannski betur inn á þau efnisatriði síðar. Ég kom nú inn á það í fyrstu ræðu minni um þetta mál að þessi hópur sem er að koma til baka er hópur sem er búið að vera að níðast á fyrir. Það fólk er að koma til baka vegna þess að það er að sækja réttindi sem því hafði verið neitað um sem það sækir síðan á öðru stjórnsýslustigi, annaðhvort það sjálft eða þá að það er að sækja í fordæmi sem hafa skapast út af úrskurðum sem annað fólk hefur náð fram.
Þetta virðingarleysi sem er talað um og þessi hroki í rauninni, að tala alltaf um að það sé allt í fínu lagi hjá okkur, að við séum ekkert að skapa nein vandamál og kerfið sé fínt nema það þurfi bara að pússa það svolítið til, stjórnleysið sé bara út af þessu fólki (Forseti hringir.) sem kemur hérna og reynir að sækja rétt sinn.