153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:07]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P):

Virðulegi forseti. Nú langar mig að tala aðeins um stefnumótun, hvað það þýðir. Stefnumótun er þegar mynduð er einhver heildarsýn, oft út frá gildum sem eru skilgreind og svo er farið svolítið yfir breiðu myndina. Það er venjulega einhver sem er ofarlega í einhverjum valdapýramída sem fer í stefnumótun en svo er auðvitað hægt að vinna það með ýmsum hætti. Þessi aðili getur síðan átt samráð eins vítt og hann vill, kallað fleiri til og fengið alls konar sjónarmið inn. En stefnumótun er m.a. það sem ríkisstjórn er ætlað að vinna að.

Þegar við hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skiptumst aðeins á orðum þá heyrðist mér við vera nokkuð sammála um að ástandið sem við búum við núna af hálfu ríkisstjórnarinnar væri mun skárra ef það væri bara hægt að taka sig saman og koma inn með eitthvað sem kalla má stefnu. Það væri skilvirkari aðferð til að vinna hlutina, færi náttúrlega að vissu leyti mikið eftir hversu vandlega það væri unnið en það væri þá alla vega eitthvað sem byggðist á einhverri heildrænni hugsun. Ekki eins og frumvarpið sem við erum að ræða hér, sem snýst um að einn ráðherra fær einhver skilaboð úr einhverjum einum anga kerfisins um að við þurfum að taka á þessu og þessu. Svo fer umræðan í allar áttir um að það sé farið að taka á hinu og þessu og er blandað inn einhverri umræðu um álag á innviði o.s.frv. sem á bara heima á öðrum vettvangi. Hún á heima á stefnumótunarvettvangi.

Svo koma spurningar eins og: Hvað viljið þið taka á móti mörgum? Það er ekkert spurningin sem liggur fyrir. Henni verður ekki svarað með nokkurs konar afstöðu til þessa frumvarps. Það er alveg sama hvernig það er afgreitt eða hvað fólk segir um þetta frumvarp, þú verður að fara út fyrir frumvarpið til að hafa skoðun á því. Hefur ríkisstjórnin skoðun á því hve margir eigi að koma hingað, hversu margir innflytjendur, hælisleitendur, eða umsækjendur um alþjóðlega vernd, eins og réttara er að kalla þá samkvæmt nútímamáli, eigi að koma og sækja um og hversu marga eigi að samþykkja? Ég veit ekki til þess að ríkisstjórnin sé með einhverjar svona tölur þannig að það er í rauninni absúrd að búa við spurningar eins og hvað okkur finnst um það. Af hverju eru gerðar ríkari kröfur til einhverra sem eru lægra í valdapýramídanum en til þeirra sem eru fyrir ofan? Ég held að þetta stefnuleysi og þessi óskilvirkni sé vegna þess að þessir flokkar eru gríðarlega ólíkir en ákváðu einhverra hluta vegna koma sér saman um að vera við völd og eiga erfitt með að koma sér saman um stóru myndina af því að þau eru að horfa á hana frá svo ólíkum hliðum. Auðvitað gæti þetta í prinsippinu gengið upp. Mér finnst það ekki vera að ganga upp út frá því sem kemur eða kemur ekki frá þessari ríkisstjórn.

Nú gæti einhver mögulega sagt: Er það ekki óskilvirkt að vera að ræða þetta mál áfram í stað þess að láta þetta bara fara í gegn? Það er búið að segja að þessu verði breytt og það eru stjórnarflokkarnir sem bera ábyrgð á þessu á endanum. Mögulega væri bara skilvirkara að hleypa þessu í gegn en ég verð að segja fyrir mitt leyti að miðað við það sem fram hefur komið tel ég það ábyrgðarhluta að gera það í því upplýsingalega tómarúmi sem við búum hér við. Ég veit ekki hvað verður um þetta frumvarp ef það fer aftur inn í nefnd. Ég hef engin svör fengið við því. Ég hef ekki gefið upp vonina um að það komi skýrari svör svo að það sé hægt að taka aðeins upplýstari ákvörðun um frumvarpið og afdrif þess.