útlendingar.
Forseti. Ég byrjaði í fyrri ræðunni minni aðeins að lesa mig í gegnum umsagnir. Mér finnst það mikilvægt af því að þetta eru gríðarlega margar umsagnir; góðar umsagnir, skrifaðar af fagaðilum með sérþekkingu á sínu málasviði. Þetta eru aðilar sem var ekki haft neitt samráð við við gerð þessa frumvarps. Athugasemdir, viðvaranir, rauð flögg út um allt, þetta á bara allt að hunsa og keyra þetta mál í gegn, sem hlýtur að þykja frekar grátlegt. Vonandi tengir fólk það við ástæðu þess að við erum inni í þessum þingsal að tala um þetta mál. Það skiptir máli að gera grein fyrir þessum áhyggjum, athugasemdum þessara aðila. Það skiptir máli að fólk átti sig á því hvað það er sem er verið að reyna að keyra hér í gegn. Einhverjir stjórnarliðar sjá vonandi líka að sér og átta sig á þessari geðveilu sem er í gangi hérna, að ætla að keyra þetta mál svona í gegn óbreytt.
Kvenréttindafélag Íslands segir, með leyfi forseta:
„Nú liggur enn og aftur fyrir frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016. Frumvarp þessa efnis hefur verið lagt fyrr fyrir og mótmælti Kvenréttindafélag Íslands þá að jafnréttismat hefði ekki farið fram á frumvarpinu. Við fögnuðum því að sjá að því hefði verið bætt við, en tókum svo eftir að það er aðeins við 6. gr frumvarpsins og telur Kvenréttindafélagið það ekki vera fullnægjandi. Enn fremur er einungis minnst á barnshafandi konur í frumvarpinu í heild, en hvergi á þau áhrif sem þetta frumvarp hefur á kynin eða kynjajafnrétti. Þá er sérstaklega ámælisvert að hvergi er minnst á konur í viðkvæmri stöðu og hunsar frumvarpið því með öllu þá hættu sem steðjar að konum, t.d. á að lenda í mansali.
Helstu atriði sem Kvenréttindafélag Íslands gagnrýnir eru að:
Ekki hafi enn verið framkvæmt nægilegt jafnréttismat og hunsar frumvarpið þau ólíku áhrif sem slíkar lagabreytingar hafa á stöðu kynjanna.
Ekki er tekið tillit til sérstakrar stöðu kvenna eða annarra jaðarhópa.
Ekki hefur verið haft sérstakt samráð við fagaðila við vinnslu þessa frumvarps, eins og bent var á í sameiginlegri áskorun 15 félagasamtaka á Íslandi þann 19. maí 2022.“
Ef við förum áfram inn í þessa umsögn er gerð ítarlegri grein fyrir athugasemdum. Það sem mér finnst m.a. áhugavert af því sem kemur hérna fram — eða ég veit ekki hvort það er rétta orðið, mér finnst þetta bara vera sláandi. Hér kemur fram, með leyfi forseta:
„UN Women á Íslandi bendir á að ein af hverjum fimm konum á flótta hefur þurft að þola kynferðislegt ofbeldi;“ — ein af hverjum fimm konum, herra forseti — „að 60% kvenna í heiminum sem deyja á meðgöngu eða af barnsburði deyi á átakasvæðum; að konur og börn séu fjórtán sinnum líklegri til að deyja við slíka neyð; að stelpur séu rúmlega helmingi líklegri til að detta úr námi; og að konum sé yfirleitt haldið utan við ákvarðanatökur í neyð og á átakasvæðum og að þarfir almennings séu þar af leiðandi greindar fyrst og fremst út frá þörfum karla. Því er mikilvægt að tillit sé tekið til sérstakrar stöðu kvenna þegar farið er yfir umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd.
Þó að Kvenréttindafélag Íslands fagni því að sérstakt tillit sé tekið til barnshafandi kvenna í þessu frumvarpi með því að veita þeim áframhaldandi aðgang að mæðravernd og fæðingarhjálp,“ — sem ætti, forseti, í fullri alvöru bara að vera sjálfsagt, við ættum ekki að vera að fagna því eitthvað sérstaklega að barnshafandi konur fái áframhaldandi aðgang að mæðravernd og fæðingarhjálp. Hvað er í gangi? Það er bara sjálfsagt. — „þá harmar félagið að ekkert sé tekið fram um önnur réttindi þeirra og séu þær þá í jafn mikilli hættu og aðrir að lenda á götunni, þó þær séu barnshafandi.“
Þetta er sláandi, forseti. Þessar konur koma hingað í von um skjól, öryggi og tækifæri til að lifa mannsæmandi lífi, fyrir sig, fyrir börnin sín og fyrir fjölskyldurnar sínar, og við erum að senda þær út á götuna. Það er alla vega ekkert í þessu frumvarpi sem kemur í veg fyrir að það verði gert.
Forseti. Mér finnst mikilvægt að leggja áherslu á það að í 2. umr. um frumvörp geta þingmenn raunverulega talað út í hið endalausa, það eru engin takmörk á umræðunni, en þegar málið fer inn í nefnd eftir 2. umr. (Forseti hringir.) og kemur út í 3. umr. þá eru takmörk á umræðunni. Þetta er ástæðan fyrir því að ég og við Píratar stöndum hér (Forseti hringir.) og erum að halda ræður þrátt fyrir að það séu einhver óljós loforð eða vilyrði fyrir því að einhverjar breytingar verði mögulega gerðar í nefnd (Forseti hringir.) á milli 2. og 3. umr. Við vitum að við höfum enga stjórn á þeim breytingum og þegar málið kemur aftur út í 3. umr. þá verður það klárað. Við höfum bara áhyggjur af því (Forseti hringir.) að stórlega sé vegið að mannréttindum mjög jaðarsetts hóps í þessu landi og við viljum koma í veg fyrir það.
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna á að ræðutíminn er fimm mínútur.)