153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:23]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Eins og ég sagði í síðustu ræðu minni þá langaði mig að fjalla aðeins um það hvaðan hælisleitendur eru að koma. Það fer kannski ekki á milli mála að stærsti hópurinn er frá Úkraínu og eins og ég hef sagt hljótum við öll að vera stolt yfir því að við Íslendingar séum að taka á okkur þann hluta af baráttunni fyrir lýðræði í Evrópu. Annar stærsti hópurinn, eins og ég hef nefnt, kemur frá Venesúela og ég tel mig hafa fjallað ágætlega um þann hóp.

Mig langar að tala aðeins um þriðja stærsta hópinn á síðasta ári. Um 240 manns komu frá Palestínu, árið 2022 reyndar, á heimasíðu Útlendingastofnunar var hægt að sjá tölur fyrir Palestínu, Úkraínu og Venesúela alla vega út nóvember. En 240 manns er svo sannarlega meiri fjöldi en við höfum verið að sjá koma frá Palestínu á undanförnum árum. Árið 2019 komu 24. Ég tel reyndar að 2020 og 2021 séu ekki samanburðarhæf ár enda var lítið um möguleika á því að ferðast á milli landa á þeim tíma. En af hverju ætli að hingað sé að koma fleira fólk frá Palestínu en áður? Við heyrum ekkert endilega oft í fjölmiðlum hér á Íslandi umræður um ástandið í Palestínu. Við þingmenn fengum í síðustu viku fréttabréfið Frjáls Palestína en þar kom fram að Ísraelsher hefur drepið 2.300 palestínsk börn frá aldamótum. Það eru 100 börn á ári. Og það sem hefur gerst síðan 2019 er að í Ísrael hafa eiginlega allan þann tíma mjög miklar harðlínu hægri stjórnir verið við völd. Því miður er sú hættulegasta og sú sem er lengst til hægri af þeim öllum akkúrat við völd núna. Það þýðir að enn er búið að auka við landnemabyggðir, bæði á Gaza og á Vesturbakkanum, en einnig hafa sífelldar árásir verið á þessi svæði. Fyrir utan það hafa jafnvel verið gerðar árásir á flóttamannabúðir. Allt gerir þetta það að verkum að fólkið sem þarna er vill flýja það ófremdarástand, það stríð, sem Ísrael er í raun í gegn Palestínu.

En hverjar ætli séu ástæðurnar fyrir því að fólk frá Palestínu velji að fara hingað norður á hjara veraldar? Ekki eru það hrútspungarnir eða maturinn okkar. Nei, kannski skiptir það máli að Ísland var fyrst vestrænna ríkja til að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt land og þjóð. Já, við tókum forystu þar og gerðum þar með frábæra hluti. Ísland er líka land þar sem fjölbreytileikinn er samþykktur og stutt við fólk sem er hinsegin og kynsegin, nokkuð sem þekkist ekki í þeim hluta heimsins sem þau flýja frá. Kannski skiptir líka máli að þeir Palestínumenn sem hingað hafa komið hafa aðlagast samfélaginu vel. Það smitar út frá sér. (Forseti hringir.) En munum samt úr tölfræðinni sem ég gaf áðan að það eru ekki allir Palestínumenn sem fá að setjast hér að en þeir sem eru ofsóttir fá það.