útlendingar.
Virðulegi forseti. Í síðustu þremur ræðum hef ég vikið að umsögn Íslandsdeildar Amnesty International og hefur það ekki dugað til að fara yfir allar þær athugasemdir sem Íslandsdeild Amnesty International hefur gert við frumvarpið. Tek ég nú fyrir það sem Íslandsdeild Amnesty International hefur almennt að segja um frumvarpið, með leyfi forseta:
„Samkvæmt frumvarpinu er því einkum ætlað að stuðla að gagnsærri og stöðugri framkvæmd laganna, auka skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma til hagsbóta fyrir verndarkerfið og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þrátt fyrir þessi yfirlýstu markmið eru gildar ástæður til að halda því fram að frumvarp þetta muni leiða til mun lakari stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd en nú þegar er við lýði gagnvart stjórnvöldum. Hröðun málsmeðferðartíma má ekki koma niður á grundvallarréttindum einstaklinga.
Íslandsdeild Amnesty International hefur áhyggjur af fleiri ákvæðum frumvarpsins. Sem dæmi má nefna að frumvarpið gerir strangari kröfu m.a. um rétt einstaklinga til að fá mál sitt endurskoðað í samanburði við hin Norðurlöndin, þ.m.t. Svíþjóð. Þykir því ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af þróun virðingar fyrir mannréttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Íslandi. Íslandsdeild Amnesty International minnir á þær ríku skyldur stjórnvalda að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar og mikilvægi þess að axla ábyrgð og skapa hér góð skilyrði fyrir fólk á flótta. Íslenskum stjórnvöldum ber að tryggja að lög séu í samræmi við alþjóðlega mannréttindasamninga, svo sem mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, samning Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg félagsleg og menningarleg réttindi, sem Ísland hefur fullgilt, auk barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmála Evrópu sem báðir hafa verið lögfestir hér á landi.
Ítrekað hefur verið bent á skort á samráði við gerð frumvarpsins auk þess að bent hefur verið á verulega vankanta á efni frumvarpsins. Deildin áréttar sérstaklega áskorun sína og 14 annarra samtaka til ríkisstjórnarinnar um að draga þetta frumvarp til baka og vinna það betur og í mun meira samráði við alla þá hagsmunaaðila sem að málaflokknum koma. Mikilvægt er að lagabreytingar sem þessar séu unnar í þverfaglegu samráði, til þess að skapa sátt um stefnu og lagaumhverfi í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd með mannúð og mannréttindi að leiðarljósi.“
Ég get ekki sagt annað en að þessi umsögn sé sláandi. Bæði er hún sláandi því að hún bendir á augljósa vankanta á frumvarpinu en hún sýnir líka greinilega að samráð var ekki nægt. Hún sýnir líka að ábendingar Pírata um gallana á frumvarpinu, um þau vandamál sem það skapar, eiga við rök að styðjast. Þetta er ekki bara eitthvað sem við í Pírötum erum að benda á. Þetta hafa aðrir aðilar bent á og það ítrekað. Það er ekki eins og þessi gagnrýni sé að koma fram núna á lokametrunum, þvert á móti hefur Íslandsdeild Amnesty International verið að senda inn umsagnir um þetta og fyrri frumvörp ítrekað yfir langan tíma. Stjórnarliðum var því í lófa lagið að bregðast við þessum ábendingum og viðhafa betra samráð við hagsmunaaðila við samningu frumvarpsins en því hefur bara ekki verið sinnt.