153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:34]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P):

Virðulegi forseti. Þættinum hefur borist bréf. Við höfum hér farið ítarlega yfir margar umsagnir við frumvarpið. Hér er ein sem kom í vikunni og er í raun áskorun í formi umsagnar sem mig langar að lesa upp. Mér finnst að við þingmenn sem erum með málið til meðferðar skuldum þessu unga fólki — rétt eins og við skuldum þeim félagasamtökum sem hafa ítrekað, hvert í sínu lagi og í sameiningu, gagnrýnt frumvarpið og hvatt til þess að það verði ekki samþykkt og að bakkað verði með það og farið í annars konar ferli — alla vega að sjónarmið þess heyrist héðan úr ræðustól. Mér finnst að við eigum að taka það að okkur fyrir þeirra hönd að kalla eftir því að sjónarmiðum þeirra verði svarað af hálfu þeirra sem annaðhvort hafa lýst yfir stuðningi við frumvarpið eða þeirra sem maður hefur grunuð um að styðja það. Það er nú ansi stór hópur sem ekki hefur látið afstöðu sína í ljós og þetta fólk þarf að svara betur þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið.

Áskorunin er frá 14 ungliðahreyfingum félagasamtaka, stjórnmálaflokka og stúdentahreyfinga. Hún hefst svona, með leyfi forseta:

„Grasrótarhreyfingin Fellum frumvarpið fordæmir frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (alþjóðleg vernd, brottvísunartilskipunin, dvalar- og atvinnuleyfi), nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd), í daglegu máli kallað útlendingafrumvarpið.

Við styðjum og tökum undir umsagnir Íslandsdeildar Amnesty International, Kvenréttindafélags Íslands, SOLARIS, Rauða krossins, UNICEF á Íslandi, UN Women og Þroskahjálpar.

Við sem ungmenni í landinu höfum verulegar áhyggjur af skelfilegri þróun núverandi ríkisstjórnar í málefnum útlendinga. Við krefjumst þess að allar lagabreytingar sem standa til skuli vera gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Frumvarpið stangast á við ákvæði í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem er lögfestur í íslenskum lögum. Þar með ber stjórnvöldum skylda til að fylgja honum. En í 3. gr. barnasáttmálans kemur fram að stjórnvöld eigi að taka ákvarðanir sem varða börn, byggt á því sem er börnunum fyrir bestu. Auk þess brýtur frumvarpið 1. gr. jafnréttislaga. Frumvarpið veitir stjórnvöldum heimild til að senda flóttamenn til ríkja sem ekki eru talin örugg móttökuríki eins og Rauði krossinn hefur bent á.“

Ég ætla að sleppa hérna nokkrum málsgreinum sökum tímaskorts.

„Við teljum að harkalegri og strangari stefna í málefnum flóttafólks og umsækjanda um alþjóðlega vernd sé röng leið að skilvirkari kerfi. Það að skerða verulega rétt flóttamanna til að fá mál sín skoðuð nægilega vel, á grunni rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar og réttlátrar málsmeðferðar, er mannréttindabrot. Í frumvarpinu kemur fram að heilbrigðisþjónusta, lágmarksaðstoð og réttur til húsnæðis falli niður 30 dögum eftir synjun á alþjóðlegri vernd. Það veldur okkur miklum áhyggjum að velferð og öryggi flóttamanna sé hunsað í þessu frumvarpi og að þau njóti ekki grundvallarmannréttinda.

Eftirfarandi félög skora á dómsmálaráðuneytið, forseta Alþingis, Birgi Ármannsson, og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að draga frumvarpið til baka og vinna það upp á nýtt í samstarfi við fagaðila þar sem virðing fyrir jafnrétti og mannréttindum eru höfð í hávegum“

Undir þetta rita ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty, ungmennaráð Þroskahjálpar, Ungheill – ungmennaráð Barnaheilla, ungmennaráð UN Women, Ungir umhverfissinnar, Röskva – samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, háskólahreyfing Amnesty, Femínistafélag Háskóla Íslands, Q – félag hinsegin stúdenta, Ung vinstri græn, Ungir sósíalistar, Ungt jafnaðarfólk, Ungir píratar og Uppreisn - Ungliðahreyfing Viðreisnar

Hér má sjá merki þessara félaga. Ég hvet fólk til að skoða þessa áskorun í málsgögnum með frumvarpinu á vef Alþingis.