153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:40]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Áðan barst þættinum bréf en nú kemur bilaða platan. Við höfum ítrekað spurt hvort von sé á hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, eða einhverjum af félögum hans í stjórnmálahreyfingunni Vinstri grænum og hér koma hvorki inn nokkrir hv. þingmenn úr þeim flokki né hæstv. ráðherra. Mig langar því að ítreka enn og aftur beiðni til forseta um að óska eftir því að hæstv. ráðherra komi hingað og taki þátt í efnislegri umræðu um þetta mál. Ég skil hreinlega ekki af hverju hann er svona hræddur við að koma og ræða við okkur á málefnalegan og lýðræðislegan hátt um þetta mál.