útlendingar.
Virðulegi forseti. Í síðustu ræðu minni fór ég yfir rangfærslur sem komu fram í viðtali við hæstv. dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson, í morgunútvarpinu á Rás 2 þann 24. maí á síðasta ári. Ég náði ekki að fara yfir þær allar og held því áfram núna.
Í fjórða lagi nefni ég þá rangfærslu að fólk í Grikklandi búi við sömu aðstæður og aðrir Grikkir. Um þetta eru ótalmargar skýrslur og um það getur hæstv. ráðherra auðveldlega lesið sjálfur. Flóttafólk hefur öll réttindi á blaði í Grikklandi en þau eru ekki virk. Flóttafólk hefur ekki raunverulegan aðgang að vinnumarkaði, ekki aðgang að húsnæðismarkaði og ekki aðgang að félagslegum úrræðum. Þetta þýðir að langflestir flóttamenn í Grikklandi eru á götunni án húsaskjóls, án matar og án vonar um að það muni nokkurn tímann breytast.
Í fimmta lagi er það lagaumhverfið sem mælir gegn því að þessi hópur fái að vera, og það er aftur rangt. Lögin koma ekki í veg fyrir að fólk fái að vera og farið var yfir það í leiðréttingu við rangfærslur eitt og þrjú. Ráðherra endurtekur þetta aftur.
Þá vík ég að sjöttu rangfærslunni: Flestir fara af landinu af sjálfsdáðum þegar þeir hafa fengið höfnun. Það er rangt. Fæstir fara af sjálfsdáðum eftir synjun en þegar fólki er ekki gefinn annar kostur streitist það ekki endilega á móti. Það er samt á vegum lögreglunnar og gjarnan í lögreglufylgd. Það kallast ekki að fara af sjálfsdáðum.
Sjöunda rangfærslan er að það brjóti gegn jafnræði að stöðva endursendingar til eins ríkis en ekki annars. Ísland hefur ekki sent fólk til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar síðan 2010. Það er byggt á aðstæðum hælisleitenda þar í landi og brýtur ekki gegn jafnræði. Mörg gögn sýna að staða fólks sem hefur fengið vernd í Grikklandi sé jafnvel verri en hælisleitenda, þ.e. þeirra sem eru að bíða eftir svari við umsókn sinni um vernd, enda er fólki vísað út úr úrræðum á vegum hersins og hjálparstofnana þegar það er búið að fá vernd. Þá fer fólk á götuna. Ætlast er til að það sjái um sig sjálft sem því er í mjög mörgum tilvikum ómögulegt að gera vegna kerfisbundinna hindrana, mismununar og annarra vandamála sem ekkert bendir til að verði nokkurn tíma leyst. Þetta ástand hefur ríkt í Grikklandi árum saman og hefur lítið breyst til batnaðar. Nær væri að segja að það brjóti gegn jafnræði að senda flóttafólk til Grikklands en ekki hælisleitendur.
Að það sé ekki á forræði dómsmálaráðherra að rýmka reglur um heimild fólks til komu og dvalar í atvinnuskyni heldur sé það á forræði félags- og vinnumarkaðsráðherra — það er rangfærsla. Hæstv. ráðherra veit að það fellur ekki undir hans ráðuneyti. Útlendingalögin eru á forræði dómsmálaráðherra og það eru útlendingalög sem kveða á um heimild fólks til komu og dvalar hér á landi. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sér um atvinnuleyfin, ekki dvalarleyfin. Atvinnuleyfi er ekki hægt að veita án dvalarleyfis. Við þetta bætist að þegar er búið að leggja fram frumvarp á sviði félags- og vinnumarkaðsráðherra um atvinnuleyfi fyrir fólk með mannúðarleyfi eins og það fólk sem kemur hingað frá Úkraínu.
Ég velti því fyrir mér hvort einhver af þessum rangfærslum skýrir það hvers vegna þetta frumvarp er ekki betra en raun ber vitni. Ég neyðist því miður til þess að óska eftir því að koma aftur á mælendaskrá því að ég er engan veginn búinn að tæma rangfærslurnar og mun því víkja að þeim hér í síðari ræðum.