útlendingar.
Virðulegi forseti. Mig langar að nýta tímann og rýmið til að tala hreinlega og heiðarlega um það af hverju ég er hér að tala. Ég hef svo sem komið inn á það áður en mér finnst mikilvægt að þetta sé skýrt, eins skýrt og hægt er. Ég vona að það skili sér að þarna er ekki verið að látast eða halda einhverju aftur eða vera í einhverjum leikjum sem eru ekki alveg uppi á borðinu. Málið er, eins og hér hefur oft verið komið inn á, að 2. umr. er vettvangurinn til þess að taka djúpa efnislega umræðu og það um mál sem telst að mestu leyti fullunnið, þannig er verklagið hérna. Ég hef ekki verið mjög lengi hér við störf en ég hef fylgst með störfunum utan frá mjög lengi og þannig skil ég verklagið. Eftir 1. umr. fer málið inn í nefnd og þar fer fram mjög ítarleg vinna, málið er pússað til og svo koma breytingartillögur. Síðan fer málið úr nefnd og þá kemur þessi 2. umr. sem er í gangi núna þar sem ræðutími er rúmur, umsagnir eru komnar inn, málið búið að vinnast yfir langan tíma og nefndin að leggja það fram, eða meiri hluti hennar ef ekki er sátt um málið, hvernig hún vill að frumvarpið líti út. Þetta er að öllu jöfnu líka að því gefnu að þegar ríkisstjórnin leggur frumvarpið fram, eða ráðherrann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, þá sé frumvarpið af hennar hálfu eins og hún vill að það líti út. Ég held og vona að verklagið sé almennt þannig, að meiningin sé að verklagið sé þannig, að ekki eigi að umturna frumvarpinu alveg í meðförum nefndarinnar. Þá er það bara lélegt frumvarp til að byrja með. En það er allt sem bendir til þess að þetta sé einmitt mjög lélegt frumvarp alveg frá upphafi. Það hefur margoft verið bent á það og kallað eftir öðruvísi verklagi og meira samráði og að ríkisstjórnin sýni meiri ábyrgð í því að taka þetta af stefnumótununarstigi. Þetta er bæði lélegt á því stigi og þetta er lélegt eins og þetta kemur út úr nefndinni. Þess vegna, og líka út frá því hve umræður hér hafa verið af skornum skammti af hálfu stjórnarþingmanna, þá treysti ég því ekki að frumvarpinu verði allt í einu alveg umturnað þannig að það verði bara miklu betra í lokaumferð í nefndinni eftir að umræðum hér lýkur. Það er bara fáheyrð hugmynd, mér finnst hún galin. Ef það er virkilega ætlast til þess að maður haldi það þá er verið að ætlast til þess að maður sé ekki alveg með fullum sönsum. En hins vegar er enn von eins og áskoranir sem hafa borist kveða á um. Enn er von til þess á þessu stigi að annaðhvort verði frumvarpið alfarið dregið til baka eða, sem væri ekki alveg eins gott að mínu mati en samt skárra en að senda það í lokaumfjöllun, að það verið tekið til baka. Ég játa reyndar fáfræði í því, ég veit ekki hvort það er tæknilega mögulegt. Hér kinkar hv. þingmaður kolli, það er mögulegt að taka frumvarpið til baka inn í nefnd með þeim hætti að 2. umr. fari fram frá grunni. En hvernig sem það er útfært þá er ég ekki sáttur, alls ekki sáttur, við þá útfærslu að frumvarpið, eins illa unnið og það er, eins illa rætt og það er, og með tilliti til óvissu, verði fært skrefi nær því að verða samþykkt.