153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:37]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegi forseti. Fyrst þingmenn stjórnarliða hafa ekki tekið til þess að svara þeim spurningum sem ég hef lagt fram hérna í ótal ræðum, og aðrir þingmenn, þá brá ég á það ráð að lesa upp og leiðrétta nokkrar rangfærslur sem komu fram í viðtali við hæstv. dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson, á Rás 2 þann 20. maí á síðasta ári. Ég held þá áfram að fara yfir þær rangfærslur sem komu fram.

9. liður: Þetta fólk kemur hér inn í verndarkerfið, ef það væri að koma hingað til að dvelja og vinna væri það að sækja um dvalar- og atvinnuleyfi. Umsókn um vernd er akkúrat þetta: Umsókn um dvalar- og atvinnuleyfi. Þegar fólki er veitt staða flóttamanns fær það fjögurra ára dvalarleyfi og óbundið atvinnuleyfi. Það er opið, hægt að vinna við hvað sem er. Þetta fólk á ekki möguleika á annars konar dvalar- eða atvinnuleyfi hér á landi. Þetta er dvalar- og atvinnuleyfið sem þau eiga kost á að sækja um og kerfið gerir ráð fyrir að þau sæki um. Dómsmálaráðherra hefur einfaldlega ákveðið að synja þeim um það því honum finnst að lögin eigi að vera öðruvísi en þau eru.

10. liður: Við erum í alþjóðasamstarfi og vinnum eftir þeim reglum sem löndin setja okkur. Þetta, eins og önnur atriði sem ég er búinn að fara yfir, er rangt. Það er ekkert alþjóðasamstarf, hvorki Evrópusamstarf né annað, sem kveður á um að fólk skuli sent þangað sem það hefur fengið vernd, ekkert. Um þetta gilda landslög, ekki alþjóðasamningar eða -reglur. Dyflinnarreglugerðin gildir ekki um fólk sem er búið að fá stöðu flóttamanns í einhverju Evrópuríki. Í ofanálag er sú reglugerð skýr um það að einungis sé um heimild að ræða en ekki skyldu en hún gildir ekki einu sinni í þessum málum. Það er ekkert sem skyldar okkur til að senda þetta fólk til baka. Jafnvel þó að hún gilti væri það ekki skylda heldur heimild

11. liður er að frumvarp ráðherra muni verða til þess að málsmeðferðartími fólks styttist. Flestar breytingarnar sem ráðherra leggur til í frumvarpinu munu vinna gegn skilvirkni og fjölga málum þar sem fólk er hérna í lengri tíma án þess að fá úrlausn sinna mála. 12 mánaða reglan er tekin úr sambandi, sem dæmi, sem var ein mesta réttarbótin í átt að skilvirkni kerfisins með lögunum frá 2016. Það þýðir að fólk getur verið hérna árum saman án þess að skorið sé úr um það hvort skoða eigi umsóknina. Núgildandi lög bjóða upp á að þessi mál séu afgreidd mjög hratt en með því að rembast við að reyna að senda fólk til baka er málsmeðferðin lengd og málið tafið. Samkvæmt núgildandi lögum væri hægt að taka mál þessa fólks til efnismeðferðar og veita því stöðu flóttamanns á innan við klukkutíma. Þetta eru viðurkenndir flóttamenn. Það þarf ekkert nema ákvörðun ráðherra um að hætta að senda fólk til Grikklands og Ungverjalands og það er sannarlega í verkahring ráðherra og ekki á valdi annarra. Ég ítreka það sem ég sagði hérna áðan: Mögulega, ef það var unnið eftir þessu, ef það var unnið miðað við þessar rangfærslur, þá skýrir það hvers vegna þetta frumvarp sem hér er til umræðu er ekki betra en það er og ég skil enn ekki hvers vegna við fáum ekki að heyra þær breytingar sem gera á á því hér.