153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:43]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Þar sem nýr forseti hefur sest í stólinn langar mig að upplýsa frú forseta um margítrekaða beiðni þess efnis að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, eða jafnvel einhver annar úr hans þingflokki, komi hér og taki þátt í efnislegri umræðu um málið. Okkur skilst að fyrri forseti hafi sent bréf og við erum reyndar líka búin að senda nokkur bréf. Mig langaði því fyrst að spyrja virðulegan forseta hvort eitthvert bréf hafi borist og ef svo er ekki hvort frú forseti gæti ítrekað þessa beiðni fyrir okkur þannig að við getum átt efnislega umræðu um málið við hæstv. ráðherra.