útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég var rétt byrjuð að tæpa á b-lið 1. gr. áðan sem er beintengdur við 6. gr. frumvarpsins, þannig að ég ætla aðeins að geyma það, það snýst um þjónustusviptinguna líkt og ég nefndi. Af einhverjum ástæðum þykir mikilvægt að breyta skilgreiningu í lögunum á því hvað umsækjandi um alþjóðlega vernd er og hvernig hann er frábrugðinn útlendingi í lögunum. Það snýst um að tryggja að fólk eigi ekki rétt á tiltekinni þjónustu sem er síðan líka tekið á í 6. gr.
Ég ætla að vinda mér yfir í 2. gr. frumvarpsins sem er kannski sú grein sem við fyrstu sýn virðist hvað meinlausust í þessu frumvarpi, fyrir utan náttúrlega 21. gr. Ég held að það sé síðasta greinin sem er frábær, enda er hún samhljóða frumvarpi sem sú er hér stendur hefur lagt fram alveg sér. En þessi 2. gr. laganna er svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Við 7. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á efnismeðferð á grundvelli 36. gr. sætir sjálfkrafa kæru til kærunefndar útlendingamála nema umsækjandi óski þess sérstaklega að kæra ekki og skal greinargerð vegna kæru berast kærunefnd innan 14 daga frá birtingu ákvörðunarinnar.“
Það sem er verið að gera þarna er að gera kæru á ákvörðun Útlendingastofnunar sjálfkrafa til kærunefndar útlendingamála. Í dag er það þannig að eftir að ákvörðun hefur verið birt umsækjanda um synjun þá hefur hann 15 daga til að taka ákvörðun um það hvort hann vilji kæra til kærunefndarinnar. Og eftir að hann er búinn að kæra hefur hann í framkvæmd — ég held það séu enn sjö virkir dagar, eða hvort það voru tíu virkir dagar — til að skila inn greinargerð, eða fimm virka daga, ég held að það sé vika. Þarna er sem sagt verið að reyna að stytta málsmeðferðartímann um örfáa daga á kostnað réttaröryggis umsækjanda og á kostnað vinnuálags hjá kærunefnd. Þetta leiðir til þess að það verða væntanlega einhver mál kærð sem kærandi kærir sig ekkert um að kæra. Í slíkum tilvikum er mjög ólíklegt að viðkomandi fari að draga kæru sína til baka, eins og hefur verið bent á. Þá er það líklega í þeim tilvikum fólk sem er bara slétt sama um málið.
Ég ætla aðeins að lesa upp það sem kemur fram í greinargerð með frumvarpinu um þetta ákvæði. Það er sem sagt þessi sjálfkrafa kæra, og síðan er líka í lögunum kveðið á um greinargerðarfrestinn sem er lengdur. Ég óskaði eftir þýðingu á enska orðinu, sem ég ætla ekki að hafa eftir hér uppi í pontu, á internetinu og upp kom tillagan klessuklúður. Ég er á þeirri skoðun að þetta frumvarp sé óttalegt klessuklúður og þetta ákvæði er eitt dæmi um það. Það er verið að stytta málsmeðferðartímann, ég veit ekki um hversu marga daga, við það að 15 daga kærufresti og sjö daga greinargerðarfresti er breytt í sjálfkrafa kæru og 14 daga greinargerðarfrest, úr 21 degi í 14 daga, það er verið að stytta um eina viku. Svo er í raun ekkert verið að stytta málsmeðferðartímann hjá kærunefndinni vegna þess að málið kemur ekki til kasta kærunefndar fyrr en búið er að kæra. Eins og staðan er í dag eru þarna í upphafi sjö dagar, á meðan kærunefndin er með málið til meðferðar en er að bíða eftir greinargerðinni, en verður eftir breytingarnar 14 dagar. Þetta er allt mjög skrýtið, allt óttalegt klessuklúður eins og ég segi.
Ég held áfram að lesa upp úr greinargerðinni — já, já, alltaf að falla á tíma — um 2. gr., með leyfi forseta:
„Undanfarin ár hefur fjölgað umsóknum um alþjóðlega vernd frá umsækjendum sem hafa dvalið í öðrum ríkjum Schengen-svæðisins áður en þeir óskuðu eftir alþjóðlegri vernd á Íslandi.“
Ég ætla að gera hlé þarna og benda á að þarna eru frumvarpshöfundar nokkuð heiðarlegir með tilefni breytinganna. En bara til þess að sýna hvað þetta er kjánaleg tillaga má taka fram að þetta gildir bara í málum þar sem fólk hefur fengið vernd í öðru ríki en ekki í öðrum efnismeðferðarmálum. Þar er kæra ekki sjálfkrafa og ekki kveðið á um greinargerðarfrest í lögunum. Það er því svolítið erfitt að sjá hvernig þetta (Forseti hringir.) á að gera lögin einhvern veginn skýrari og straumlínulagaðri. Þetta er náttúrlega bara eitthvert klessuklúður.