153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:03]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegi forseti. Ég hef verið hérna í síðustu ræðum að grípa niður í atriði sem komu fram í viðtali við Jón Gunnarsson í morgunútvarpinu á Rás 2 þann 24. maí á síðasta ári. Það hefur tekið þrjár ræður að fara yfir það sem við erum komin með en nú er komið að síðasta atriðinu, kannski einu af þeim mikilvægari; að frumvarp ráðherra verði til þess að draga úr komum flóttamanna hingað. Mér finnst þessi nálgun vera svipuð eins og ætla að fækka barnsfæðingum með því loka fæðingardeildinni.

En íslenskum lögum er beitt með sama hætti og í öðrum Evrópuríkjum þó að þau séu í raun rýmri. Fólk leitar hingað því að það er í neyð, ekki af því að reglurnar hérna séu svo frábærar og ólíkar því sem er í öðrum ríkjum. Árið 2018 var endursendingum flóttafólks til Ungverjalands hætt fyrir tilstilli kærunefndar útlendingamála. Hingað kom svo lítill hópur sumarið 2020 sem var með stöðu flóttamanna í Ungverjalandi sem virðist hafa haft vitneskju um að flóttafólk væri ekki sent héðan til Ungverjalands; upp til hópa mikið menntað og mjög fært fólk. Útlendingastofnun tók sig þá á og breytti þeirri framkvæmd og fór að senda fólk til Ungverjalands að nýju án þess að ástandið hefði nokkuð batnað þar frá því að fyrri afstaða var mótuð heldur í raun versnað töluvert.

Mörg þessara mála féllu á 12 mánuðunum með miklum herkjum. Sum þeirra eru í þessum hópi sem átti að senda burt á þeim tíma. Fjöldinn sem leitar hingað til lands, eftir að hafa fengið vernd í öðru ríki, veltur meira á aðstæðum þar í landi en regluverkinu hér. Þar fyrir utan er það er ekki göfugt markmið að setja ógeðslega löggjöf til að fæla fólk frá því að koma hingað til lands. Mörg ríki hafa farið þá leið og það hefur verið kallað „kapphlaupið á botninn“. Er það virkilega það sem við viljum gera? Viljum við taka þátt í svoleiðis kapphlaupi og verða þar með hluti af vandanum í staðinn fyrir að verða hluti af lausninni?

Ég verð að játa að það rifjast upp fyrir mér, við að skoða þessar rangfærslur, að aftur, eins og áður sagði, skýrist það mögulega í hvaða stöðu við erum nú. Mögulega skýrir það hvers vegna við erum ekki að leggja hér fram frumvarp byggt á samráði við umsagnaraðila, á samráði við sérfræðinga, á gagnkvæmum samtölum milli þingmanna stjórnar og stjórnarandstöðu. Allir í stjórnarandstöðu, í það minnsta í flokki Pírata, hafa mikinn áhuga á að gera þessi mál vel, að bæta úr í málaflokknum. Það er engin andstaða frá okkur í Pírötum við það að gera breytingar. Þvert á móti, eins og ítrekað hefur komið fram, eru breytingar þarfar.

Við verðum sífellt að þróa okkar viðbrögð, enda sjáum við hversu breytilegt landslagið er. Með innrás í Úkraínu sáum við á einni nóttu gerbreytingu á öllu landslaginu. Við verðum að bregðast við raunveruleikanum. Við getum ekki búið í einhverri tálsýn þar sem við höldum að við getum stjórnað því hversu margir komi hingað með því að setja bara nógu ógeðslegar reglur. Það er bara ekki þannig sem þetta virkar.