útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Frú forseti. Ég fékk að heyra þau orð frá samstarfsmanni hérna á göngunum rétt áðan að viðkomandi ætlaði bara að hlusta á ræðu mína þegar þessari umræðu verður lokið þar sem hann gæti þá raðað saman þessum brotum sem ég neyðist til að flytja hérna í fimm mínútna bútum, þessa ræðu mína, sem er þó eina og sama ræðan þar sem ég er að reyna að útskýra fyrir hv. þingmönnum meiri hlutans hvað þau eru að gera með því að hleypa þessu máli í gegnum þingið. Þá hvet ég fólk bara til þess að gera það. Þrátt fyrir það þá væri ég gjarnan til í að nýta það tækifæri sem felst í þessum fimm mínútna bútum sem ræða mín er í til að spjalla við þingmenn meiri hlutans ef þau vildu vera svo væn að koma í þingsal og ræða þetta við okkur. Það var ekki hægt að ræða þetta í allsherjar- og menntamálanefnd, það mátti einhvern veginn ekki. Það komu gestir og það mátti spyrja gesti spurninga en allar umræður voru stöðvaðar alltaf alveg um leið og fór ákaflega lítil umræða, lítil sem engin, fram í nefndinni um þetta mál og því síður um hvert ákvæði fyrir sig.
Ég tel alveg ljóst að það hafi verið tekin ákvörðun í upphafi um að þrýsta þessu máli í gegnum þingið, í rauninni án skoðunar, og ég tel að þorri þeirrar vinnu sem var unnin í allsherjar- og menntamálanefnd hafi verið unnin til málamynda. Ég ætla bara að fullyrða það og tek því fagnandi ef einhver vill koma og leiðrétta mig eða eiga þetta samtal. Ég er bara mjög til í það, langar það mjög mikið. Ég er búin að vera að bíða eftir tækifæri til að eiga þetta samtal, þessar samræður um þetta frumvarp; hvað okkur finnst um það, af hverju við erum að leggja þetta til, af hverju við erum að samþykkja það, af hverju við ættum ekki að gera það. Þetta samtal sem á að eiga sér stað í þessum þingsal en er ekkert að eiga sér stað. Við stöndum bara hérna og erum að „ranta“. Þannig að eina ferðina enn hvet ég sérstaklega hv. þingmenn meiri hlutans til að koma hérna og spjalla við okkur.
Ég er komin í 2. gr. frumvarpsins um þetta kjánalega klessuklúður varðandi afnám kærufrests, sem sagt sjálfkrafa kæru bara í tilteknum tegundum mála og einhverja lengingu greinargerðarfrests, miðað við það sem er núna samkvæmt starfsreglum kærunefndar útlendingamála. Það er alveg ljóst að þessi breyting styttir málsmeðferðartíma í þessum málum í allra mesta lagi um einhverja sjö daga í heild, ekki virka daga — fimm virka daga. Þegar við erum að tala um það að stjórnvöld hafi 12 mánuði til þess að afgreiða mál af þessu tagi þá er það nú ekki nein sérstök breyting. Í þessu samhengi langaði mig til að vekja athygli á því að í stjórnsýslulögum sem mér er tíðrætt um, enda eru það hin almennu lög, þær almennu málsmeðferðarreglur og almennu reglurnar sem gilda um samskipti borgaranna við stjórnvöld á Íslandi, en þar er almennt ákvæði um kærufrest og það er í 27. gr. stjórnsýslulaganna. Ég ætla að fá að lesa hana upp að hluta, með leyfi forseta:
„Kæra skal borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um stjórnvaldsákvörðun nema lög mæli á annan veg.“
Almennur kærufrestur í íslenskri stjórnsýslu eru þrír mánuðir. Það er sannarlega langur tími og þegar frumvarp til núgildandi laga var lagt fram þar sem var kveðið á um 15 daga kærufrest þá held ég að flest hafi fagnað vegna þess að það flýtir málsmeðferðinni. Það er 15 daga kærufrestur í þessum málum, það er langtum styttra en hinn almenni kærufrestur. Með því að hafa kærufrestinn 15 daga í þessum málum er að mínu mati alveg nógu langt gengið í því að takmarka rétt umsækjenda og rétt kæranda til að íhuga sína kæru og undirbúa hana, það er alveg nógu langt gengið í að takmarka þann rétt í þágu málshraða.
Þá langar mig að benda á að t.d. í einu umtalaðasta máli síðustu mánaða, þar sem einstaklingur hefur verið talinn tefja mál sitt sjálfur af því það var einhver ruglingur með bólusetningarvottorð, ég er að tala um mál sem er búið að vera mikið í fjölmiðlum, þá hafði málsmeðferðin tekið 11 mánuði og 13 daga. (Forseti hringir.) Það tefst í örfáa daga vegna einhvers ruglings og þá halda stjórnvöld því fram að viðkomandi hafi tafið málsmeðferðina sjálfur. Dómstólar voru að sjálfsögðu ekki á sama máli.