153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:19]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég kem hér aftur upp til að athuga hvort eitthvað hafi frést af hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, eða samflokksmönnum hans hér á þingi. Mig langaði sem sagt að fá að hlera hjá frú forseta hvort bréf hefði borist eða hvort einhver skilaboð hefðu borist um það hvort við fáum tækifæri til að ræða þetta mál efnislega við hæstv. ráðherra. Ef hæstv. ráðherra er mjög upptekinn þá erum við alltaf tilbúin að fresta umræðunni þangað til að hann getur komið. En það er auðvitað í valdi frú forseta.