153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:26]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla að halda áfram að veita þeim umsagnaraðilum rödd sem ekki var hlustað á við vinnslu þessa frumvarps. Ég gríp hér niður í umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, með leyfi forseta:

„Lagatillögur sem hafa með hæli að gera varða Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna beint, þar sem hún er sú stofnun sem allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna hefur veitt umboð til að útvega flóttafólki alþjóðlega vernd og til að finna varanlegar lausnir við vandamálum flóttafólks, í samvinnu við stjórnvöld. 8. mgr. stofnsáttmála Flóttamannastofnunarinnar felur stofnuninni það ábyrgðarhlutverk að hafa yfirumsjón með alþjóðlegum ráðstefnum varðandi flóttamannavernd á meðan samningur Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 og bókun frá 1967 (sem hér eftir verður vísað til í sameiningu sem „flóttamannasamningsins frá 1951“) skylda aðildarríki til að aðstoða Flóttamannastofnunina við að uppfylla umboð sitt, sér í lagi með því að greiða götuna fyrir því að Flóttamannastofnunin geti sinnt þeirri skyldu sinni að hafa yfirumsjón með því hvernig ákvæðum flóttamannasamningsins frá 1951 […] er hrint í framkvæmd. Þetta endurspeglast einnig í lögum Evrópusambandsins (,,ESB“), þar á meðal með vísun í flóttamannasamninginn frá 1951 í 78. gr. sáttmála um starfshætti Evrópusambandsins. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur einnig falið Flóttamannastofnuninni umboð á heimsvísu til að veita ríkisfangslausum einstaklingum vernd um allan heim og til að koma í veg fyrir ríkisfangsleysi og draga úr því.

Athugasemdir Flóttamannastofnunarinnar eru settar fram á eftirfarandi hátt: í lið II eru lagðar fram athugasemdir um valda hluta tillögunnar, þ.e. um endurteknar umsóknir (tillaga að nýrri grein 35a), um fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt og öruggt þriðja land […]

II. Athugasemdir.

Í ljósi þess að hælisleitendum á Íslandi fjölgaði talsvert árið 2022 kann Flóttamannastofnunin vel að meta víðtæka viðleitni íslenskra stjórnvalda til að stækka við móttökustofnanir sínar til að koma til móts við þarfir þeirra sem eru nýkomnir til landsins og til að hafa í heiðri grundvallarréttindi til að leita verndar og njóta verndar á Íslandi.

Flóttamannastofnunin gengst líka við því að tilgangur umbóta á lögum um útlendinga er sá að koma til móts við nýtilkomna þróun og gera viss atriði varðandi ákvæðin um alþjóðlega vernd skýrari. Eitt af meginmarkmiðum tillögunnar er að „sporna gegn frekari flutningum“ þar sem fjöldi þeirra hælisleitenda á Íslandi sem hafa annaðhvort sótt um vernd annars staðar eða hefur verið veitt vernd annars staðar hefur aukist.

Flóttamannastofnunin lagði fram athugasemdir við fyrra uppkast tillögunnar þann 16. ágúst árið 2019. Þær athugasemdir sem hér eru lagðar fram eru viðbót við fyrri athugasemdir og þær ber að lesa í samhengi við athugasemdirnar sem á undan komu.

Endurteknar umsóknir um alþjóðlega vernd.

Samkvæmt tillögunni er nauðsynlegt að samræma íslenskar reglur og verklag við það sem gengur og gerist í öðrum Evrópulöndum hvað varðar endurteknar umsóknir um alþjóðlega vernd og gera þær skilvirkari. Slíkum umsóknum verður vísað frá nema umsækjandinn sé staddur á Íslandi og nýjar upplýsingar í málinu séu tiltækar sem leiði til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að endurtekna umsóknin verði samþykkt.

Að mati Flóttamannastofnunarinnar er aðeins réttlætanlegt að meðhöndla umsókn sem endurtekna umsókn ef fyrri umsóknin var tekin til efnislegrar meðferðar, þar sem farið var eftir öllum tilheyrandi réttarfarsreglum. Margar gildar ástæður geta verið fyrir því að umsækjandi leggur fram endurtekna umsókn sem þeir sem ákvörðunina taka þurfa að meta áður en umsókninni er vísað frá. Meðal annars getur verið að breytingar hafi orðið á aðstæðum í upprunalandinu, að annmarkar eða ágallar hafi verið á fyrri málsmeðferð sem komu í veg fyrir fullnægjandi skoðun, áföll eða aðrar hömlur sem komu í veg fyrir ítarlegan vitnisburð frá umsækjandanum í fyrri málsmeðferð eða þá að umsækjandanum hafi áskotnast fleiri sönnunargögn.“

Hér er nóg eftir. Ég mun koma aftur að þessu í næstu ræðu.