153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:46]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég velti því fyrir mér af hverju við sjáum ekki hv. þingmenn úr stjórnarflokkunum hér, a.m.k. þá þingmenn sem sitja í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég spyr sjálfan mig hvort þessir hv. þingmenn séu einfaldlega hræddir við að taka þátt í umræðum þar sem við höfum bent á að frumvarpið brjóti að öllum líkindum stjórnarskrá og mannréttindasáttmála og aðra alþjóðlega sáttmála sem Ísland hefur skrifað undir, að hv. þingmenn séu þess vegna einfaldlega hræddir við að sitja uppi með það eftir einhverja mánuði eða ár, þegar atriði í þessu frumvarpi munu lenda fyrir dómstólum, að vera dæmd fyrir það að hafa vísvitandi sett lög sem brjóta stjórnarskrá. Ég bara spyr mig, frú forseti.