útlendingar.
Virðulegi forseti. Eins og með svo margt af því efni sem ég hef reynt að fara yfir í dag þá nægir engan veginn ein fimm mínútna ræða til þess að klára þá yfirferð sem ég hóf í síðustu ræðu um athugasemdir Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Ég held áfram að grípa niður í þeim punktum. Næst ætla ég að lesa um umsækjendur með tengsl við annað land, fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt eða öruggt þriðja land, með leyfi forseta:
„Tillagan miðar að því að takmarka möguleikann á því að umsóknir umsækjenda sem hafa „sérstök tengsl“ við annað land séu teknar til efnislegrar skoðunar […]. Í tillögunni er engin skilgreining á því hvaða forsendur liggja að baki skilgreiningu á landi sem „fyrsta landi þar sem alþjóðleg vernd er veitt“.
Flóttamannastofnunin gengst við því að það skapast áskoranir fyrir Ísland og alþjóðlega verndarkerfið í heild sinni þegar hælisleitendur og flóttamenn fara frá einu landi yfir í annað. Í sumum tilfellum fara flóttamenn og hælisleitendur áfram til annars lands til að sækja um alþjóðlega vernd sem er í raun ekki í boði á þeim stað sem þeir flúðu fyrst til; eða til að hafa aðgang að lifibrauði, fyrir tilstilli mannúðaraðstoðar eða eftir öðrum leiðum; til að komast aftur til fjölskyldumeðlima sem þeir höfðu aðskilist frá eða til að finna einhverjar varanlegar lausnir. Í sumum tilfellum flytja þeir kannski áfram til annars lands í því augnamiði að nýta sér fjárhagsleg tækifæri eða meðhöndlunarstaðla sem eru, eða talið er að séu, hærri. En ef hælisleitendur sækja ekki um alþjóðlega vernd í ríki þar sem þeir höfðu virkt tækifæri til að gera það, þá býr það til tvíverknaði í stjórnsýslunni, tafir og aukið álag á móttökugetu og hæliskerfi í ólíkum löndum.
Þess vegna kemur fram í New York-yfirlýsingunni fyrir flóttamenn og farandverkamenn frá árinu 2016 að hægt sé að setja reglugerðir um það hvort flóttamenn fái að sækja um vernd í þeim löndum sem þeir vilja, að því gefnu að þeir hafi aðgang að alþjóðlegri vernd og njóti hennar annars staðar. Því má vísa flóttafólki til baka eða senda þá áfram til ríkis þar sem þeir höfðu hlotið, hefðu getað hlotið eða geta, að fengnu formlegu samkomulagi, hlotið alþjóðlega vernd. Flóttafólk hefur ekki skilyrðislausan rétt til að velja sér „hælisland“ en taka ber fyrirætlanir þeirra með í reikninginn.
Fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt. — Hvað umsækjendur varðar sem hafa þegar hlotið alþjóðlega vernd í öðru landi áður en þeir komu til íslands er hugtakið „fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt“ almennt í gildi. Alþjóðlega verndin sem í boði var í þessu fyrsta landi þarf að vera aðgengileg og virk fyrir einstaklinginn sem um ræðir. Þó svo að tillagan skilgreini ekki þær forsendur sem liggja til grundvallar skilgreiningunni „fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt“ hefur Flóttamannastofnunin staðfastlega haldið því til haga að til þess að nota megi hugtakið „fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt“ þurfi að meta á einstaklingsgrundvelli hvort flóttamaðurinn muni
a. fá aftur aðgang inn í „fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt“;
b. fá rétt til löglegrar dvalar; og
c. njóta meðhöndlunarstaðla sem eru í samræmi við flóttamannasamninginn frá 1951 og bókunina frá 1967 og alþjóðlega mannréttindastaðla, þar á meðal — en ekki einvörðungu — vernd gegn því að vera send aftur til lands þar sem hann er í hættu.
Aðeins er hægt að vísa umsókn frá án efnislegrar meðferðar og senda umsækjandann aftur til fyrsta lands þar sem alþjóðleg vernd er veitt þegar búið er að uppfylla þessi skilyrði í tilfelli hvers einstaklings.“
Af þessu má lesa að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna setur mikla fyrirvara við þá nálgun sem er að finna í frumvarpinu. Ég mun halda áfram að lesa úr þessum athugasemdum næst þegar ég kem í pontu.