153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:59]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P):

Virðulegi forseti. Ég rak augun áðan í skrif á Facebook þar sem mælt var með því sem lækningu við þunglyndi að hlusta á umræðurnar hérna og þá var ég persónulega nefndur gott þunglyndismeðal og þessu fylgdi mynd af mér. Forsendurnar fyrir þessu voru sem sé að þessi umræða, og ég alveg sérstaklega, væri svo leiðinleg. Ég verð að játa að mér fannst þetta svolítið skrýtið og óvenjulegt. Það er ekki oft sem maður sér mælt með því sem lækningu við þunglyndi að horfa á eitthvað leiðinlegt en kannski það virki fyrir suma. Ég ætti kannski að prófa þetta einhvern tímann þegar ég er langt niðri. Kannski samsamar maður sig einhvern veginn grámyglunni og nær að sjá að það er fleira leiðinlegt eða þá hugsar: Ég ætla ekki vera svona leiðinlegur, ef ég sekk dýpra verð ég svona leiðinlegur. Eitthvað svoleiðis.

Ég gat ekki verið móðgaður yfir þessu því að ég er að reyna að vera leiðinlegur og mér finnst þetta mál mjög leiðinlegt. Þetta fékk mig engu að síður til að hugsa um hvernig hlutirnir líta út út á við fyrir einhverjum sem kveikir á sjónvarpinu og fer að horfa og hvernig er hægt að miðla málum. Manni verður svolítið hugsað til frægra orða Nietzsches, að þeir sem berjast við skrímsli þurfi að passa sig á að verða ekki skrímsli. Þetta er svolítil tilhneiging, ef þú ert að berjast gegn leiðinlegum málum, og ég er að viðurkenna sjálfur að ég er að reyna að vera leiðinlegur, þá verður þú kannski leiðinlegur sjálfur. Þá fer fólk kannski að halda að það sé fólkið sem er að tala um þetta sem er leiðinlegt, það sé fólkið sem er að gagnrýna þetta sem er leiðinlegt en ekki málið sjálft sem er leiðinlegt. Það er svolítið hættan.

Málið er að það er erfitt þegar það liggur fyrir frumvarp sem snýst um að láta börn líða fyrir það hvað foreldrar þeirra gera, um að svipta barn rétti til að sækja um vernd, henda barni úr landi af því að foreldrarnir eru taldir hafa tafið einhverja málsmeðferð. Það er rosalega erfitt að gera þetta skemmtilegt. Maður ætti kannski að syngja þetta eða setja upp leikrit. Ég verð að játa pínu vanmátt hvað það varðar. En fyrst fólk er að horfa og er að leita sér að lækningu við þunglyndi þá verð ég að segja að það sem virkar fyrir mig, til að rífa mig upp úr slíku ástandi, er að finna mér eitthvað til að slást fyrir, eitthvað sem er stærra en ég, eitthvað sem skiptir máli. Oft er það eitthvað sem er í rosalega leiðinlegum farvegi og þarf að tala leiðinlega um og setja sig inn í tyrfinn lagabókstaf og kerfi og staglast á því sama. Ég tek þessu bara sem áskorun, maður þarf að passa sig að verða ekki samdauna leiðindunum og kannski hafa smá jafnvægi í því að vera hóflega leiðinlegur og hafa samt léttleika í þessu. Mér líður bara ekkert þannig að ég eigi rosa auðvelt með að skemmta akkúrat núna. En það veldur alla vega ekki vonbrigðum varðandi þunglyndismeðalsþáttinn í mínum ræðuhöldum.