útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (um fundarstjórn):
Herra forseti. Það sem mér finnst leiðinlegast við þetta mál er að ég held að stuðningur þingmanna meiri hlutans við frumvarpið, og reyndar fleiri, byggist á misskilningi á frumvarpinu og ranghugmyndum um það um hvað þetta mál snýst. Í þeim ræðum sem voru fluttar af hálfu þingmanna meiri hlutans í upphafi umræðunnar, það voru nokkrir sem tóku til máls, þá gætti mjög mikils misskilnings. Það var mjög oft einfaldlega farið með rangt mál um áhrif frumvarpsins, tilgang og markmið. Ég verð þó að nefna að það var engu að síður upplýsandi að heyra í ræðum tiltekinna þingmanna meiri hlutans að þau væru einfaldlega hlynnt tilteknum breytingum, eins og það sé bara fínt og eðlilegt að hagsmunir barns gjaldi fyrir athafnir annarra, sem að mati umsagnaraðila og gesta (Forseti hringir.) sem komu fyrir nefndina er beinlínis brot á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskum lögum. Það er þó alla vega hreinskilið ef fólk kemur hingað upp og segir bara: Mér finnst þetta góð hugmynd. (Forseti hringir.) Ég er sammála þessu. Þetta er nauðsynleg breyting.
Ég væri gjarnan til í að fá fleiri þingmenn meiri hlutans hingað upp til þess annaðhvort að afhjúpa misskilninginn (Forseti hringir.) sem er að baki skoðun þeirra, eins og kom t.d. fram í máli hv. þm. Vilhjálms Árnasonar í gær, hann fór með fjölmargar rangfærslur á mjög stuttum tíma, (Forseti hringir.) eða koma bara og vera hreinskilin með það að þeim finnist þetta frábær hugmynd, þetta mál. — Afsakaðu forseti.
(Forseti (AIJ): Forseti minnir á afskaplega takmarkaðan ræðutíma er rætt er um fundarstjórn forseta.)