útlendingar.
Virðulegi forseti. Já, það er þetta með ræðutímann. Við þurfum kannski að fara að skoða það að leggja fram breytingu á þingsköpum hvað varðar ræðutíma. En ég las aðeins nánar þessa blessuðu auglýsingu frá þingmönnum og ráðherrum Vinstri grænna og það stóð neðst í henni: Allir velkomnir. Ég vona bara að þeir hæstv. ráðherrar sem greinilega sjá sér ekki fært að mæta hér í sal Alþingis sendi boð á alla þá þingmenn sem áhuga hafa á að koma á þennan súpufund og þeir fái að heyra hvað það er sem viðkomandi ráðherrar hafa að segja. Vonandi nýta fjölmiðlar sér líka þetta tækifæri fyrst allir eru velkomnir, nema skilgreining Vinstri grænna á öllum sé eins og skilgreining þeirra á stjórnarskránni; sumir eru mikilvægari en aðrir og allir eru ekki allir. En já, ég bara vona að þetta verði góð súpa og gott brauð.