153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:20]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Halldór Auðar Svansson kom hér áðan og ræddi um það hvort við værum skemmtileg eða leiðinleg í ræðum hér. Ég nefndi það, í minni fyrstu ræðu hér í þessari 2. umr., að ástæðan fyrir því að við Píratar værum hér væri ekki sú að við vildum endilega opna landamæri vegna þess að við vildum bara hleypa öllum inn, heldur sú að við værum að berjast fyrir mannréttindum.

Við erum að berjast fyrir því að ekki sé traðkað á stjórnarskrárvörðum mannréttindum. Og ef ég þarf að vera leiðinlegur með því að tala mikið um það hvernig verið er að traðka á stjórnarskrárvörðum mannréttindum þá verður það bara að vera þannig. Eins og ég benti á í minni fyrstu ræðu: Ef ég stend ekki upp og berst fyrir stjórnarskrárvörðum mannréttindum fyrir hælisleitendur þá verður einfaldlega næsta skref ríkisstjórnarinnar að byrja að ráðast á önnur stjórnarskrárvarin réttindi fyrir aðra. Ég spyr: Er það bara í lagi? Er virkilega í lagi að það sé hægt, skref fyrir skref, að taka til baka það mikla sem hefur verið áorkað á undanförnum áratugum í að tryggja mannréttindi hér á Íslandi? Hvað gerist næst? Lendum við kannski í því sama og er að gerast í Bandaríkjunum, að næst ráðist þeir á þungunarrof, kannski hjónabönd samkynhneigðra? Nei, við höfum verið að berjast fyrir því að byggja réttlátt samfélag og það byggir á þessum stjórnarskrárvörðu réttindum. Ef við ætlum að leyfa ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, hæstv. forsætisráðherra, sem hugsar um það eitt að halda völdum með því að leyfa hægri sinnaðasta fólkinu í samstarfsflokknum að taka til baka þau mannréttindi sem við höfum barist fyrir og forfeður okkar börðust fyrir, þá er ég til í að standa hér eins lengi og þarf og vera leiðinlegur því ég veit að ef ég stend ekki hér og berst fyrir þessu þá ganga þessir aðilar einfaldlega á lagið. Því er ég ekki tilbúinn að fórna, aldrei.

Ef hv. þingmenn stjórnarinnar reyna að segja að ekki sé verið að brjóta nein stjórnarskrárvarin mannréttindi eða alþjóðasáttmála þá endurtek ég það sem við hjá Pírötum höfum sagt mánuð eftir mánuð, ár eftir ár: Fáum þá óháðan aðila til að skera úr um það hvort þetta brjóti mannréttindi og stjórnarskrá og aðra sáttmála. Ekki fá ráðuneytið, ekki fá einhverja innan þingsins, fáum óháðan aðila til að skera úr um það. Ef þessir óháðu aðilar segja að þetta gangi ekki á þessi réttindi þá er ég til í að gefa mitt eftir og hætta að vera leiðinlegur.