útlendingar.
Virðulegi forseti. Eins og kom fram í fyrri ræðu þá hef ég verið að taka hérna efni úr umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Eins og áður hefur komið fram þá nægir ræðutíminn engan veginn til að gera henni nægilega góð skil en ég ætla aðeins að grípa niður í niðurstöðukafla umsagnarinnar, með leyfi forseta:
„Út frá ofanverðu mælist Flóttamannastofnunin til þess að Ísland íhugi að gera breytingar á tillögunni til að:
a. Tryggja það að aðeins sé litið á umsókn sem endurtekna umsókn í þeim tilfellum þar sem upprunalega umsóknin var tekin til fullrar efnislegrar meðferðar;
b. Afmarka skýrt í lögum hvaða viðeigandi mat þurfi að fara fram þegar verið er að beita hugtökunum „fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd var veitt“ annars vegar og „þriðja land þar sem alþjóðleg vernd var veitt“ hins vegar, í samræmi við ofangreindar forsendur;
c. Senda ekki umsækjanda til baka eða áfram til lands sem er ekki aðildarríki að flóttamannasamningnum frá 1951 og/eða bókuninni frá 1967 og grundvallarmannréttindagerningum;
d. Fjarlægja skilyrðið um „verulega auknar líkur á því að fallist verði á“ umsókn „um alþjóðlega vernd“ þegar endurteknar umsóknir eru metnar í a-lið í tillagðri 35. gr.;
e. Viðhalda réttindum endurbúsettra flóttamanna til fjölskyldusameiningar;
f. Viðurkenna rétt fjölskyldumeðlima/skjólstæðinga þess sem nýtur alþjóðlegrar verndar til að hljóta sjálfir alþjóðlega vernd, einnig þegar aðalumsækjandinn nýtur sameiginlegrar verndar tímabundið.“
Ég fór engan veginn yfir alla umsögnina, hér er margt annað. Í nær öllum þeim umsögnum sem er að finna um málið, og þær eru yfir 20, þá er, eins og fram kom í máli annarra hv. þingmanna, varað eindregið við frumvarpinu eins og það liggur fyrir.
Ég lýsi aftur yfir furðu yfir því að hafa ekki fengið nein svör við þeim spurningum og málefnalegu vangaveltum sem við höfum lagt hér fram þann tíma sem þetta mál hefur verið til umræðu. Ég ítreka að við teljum fullt erindi til að gera breytingar á þessu frumvarpi. Við teljum fullt erindi til að stytta málsmeðferðartíma. Við teljum fullt erindi til að minnka kostnað. Við teljum fullt erindi til að auka skilvirkni. En þetta frumvarp gerir ekkert af þessu. Þetta frumvarp er algerlega ófært um að uppfylla þá draumsýn stjórnarliða að geta klárað þetta með þessum hætti. Þetta frumvarp er sóun á tækifæri til að ná fram raunverulegum gagnlegum breytingum á lögum um útlendinga sem myndu auka skilvirknina vegna þess að lausnirnar er að finna í umsögnum. Þar eru lausnirnar. Það þarf ekkert að leita að þeim. Þó að við höfum björgunarsveit þá þurfum við ekkert að kalla hana út. Ég lýsi furðu minni yfir því að við sjáum þess ekki merki að tekið hafi verið mark á umsögnum og fáum ekki til umræðu þær breytingar sem til stendur að gera á frumvarpinu, ef einhverjar.