útlendingar.
Virðulegi forseti. Þar sem ég áttaði mig á því að ég hafði ekki spurt virðulegan forseta um það hvort einhver svör hefðu borist þá ákvað ég að gera það. Eins og forseta er kannski kunnugt þá höfum við Píratar allt frá því í desember verið að óska eftir því að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, mæti í efnislega umræðu með okkur í þessu máli þar sem það eru þó nokkur atriði sem snerta málefnasvið hans sem eru í þessu frumvarpi og voru ekki rædd af ráðherra í 1. umr. og hafa ekki verið rædd hérna í 2. umr. Þess vegna höfum við óskað eftir því. Mig langaði því að spyrja forseta hvort það hafi borist bréf frá hæstv. ráðherra um það hvort hann ætli að taka þátt.