153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:32]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Mig langar að taka undir með hv. þm. Gísla Rrafni Ólafssyni og benda á að kanna hvort mögulega annars konar samskipti en bréf hafi borist sem gætu gefið upplýsingar um hvenær þess megi vænta að við fáum málefnalega umræðu um frumvarpið í þessum sal. Það þarf ekki að vera bréf, mætti að vera bréfdúfa, tölvupóstur, eitthvað annað.