153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:33]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég spurði kannski of nákvæmt, hvort bréf hefði borist en ég meina hreinlega hvort einhverjar upplýsingar hafi borist á einhvern máta. Við förum nú bráðum að ljúka umræðunni í dag en umræðurnar munu halda áfram og mig langaði að hvetja hv. þingmenn, sérstaklega þingmenn sem sitja í allsherjar- og menntamálanefnd en einnig aðra þingmenn sem sitja hér á hinu háa Alþingi, hvort sem þeir sitja í stjórn eða stjórnarandstöðu, til að taka þátt, alla vega að hlusta. Það hafa verið nokkrir þingmenn úr öðrum flokkum að hlusta á og læra. Ég hef alltaf trúað því að við lærum af því að hlusta og ég hvet þá eindregið til að koma hér. En ég kannski endurtek spurninguna: Hafa einhverjar upplýsingar borist frá hæstv. ráðherra?