útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að leggja út af orðum þingmannsins Gísla Rafns Ólafssonar þegar hann talar um af hverju við séum að standa í þessu stappi við að vera leiðinleg, vera að berjast gegn því sem við lítum á sem mannréttindabrot og sem fleiri aðilar líta á sem mannréttindabrot, brot á alþjóðasáttmálum og brot á réttindum barna. Það er akkúrat þessi punktur sem er þekktur í sögunni, að þegar gefið er eftir á einum stað þá getur það orðið að skriðufalli. Hættan í þessu er — þingmaðurinn fór með mjög þekkt kvæði eftir Niemöller í gær sem fjallar um að manni er fyrst alveg sama um hópinn sem veist er að, og svo sama og alltaf sama þangað til það er komið að manni sjálfum.
Í þessu tilfelli er þetta hópur fólks sem er auðvelt að líta á sem fjarlægan. Þetta er fólk sem við þekkjum ekki, kemur úr mjög framandlegu umhverfi. Það er ekki bara frá útlöndum heldur flóttafólk, það er kannski veruleiki sem við þekkjum ekki. Þetta er fólk sem á sér ekki rödd, það er ekki mikið að tjá sig í samfélagsumræðunni. Það er því svo auðvelt að búa sér til alls konar hugmyndir um hvernig þetta fólk er, að það sé bara að reyna að sækja sér alls konar hluti sem það eigi ekki rétt á o.s.frv. En í þessu tilfelli eru það sterk félagasamtök, rótgróin, sem hafa tekið að sér að tala máli þessa fólks, sem hafa lagt hér inn umsagnir og ítrekaðar óskir um samráð. Svo erum við hér í þingsal að reyna að tala fyrir hönd þessa fólks, ekki bara fyrir það en að mestu leyti fyrir það og líka bara út af prinsippinu.
Við sjáum líka dæmi um það frá þessari ríkisstjórn hvernig verið er að gefa eftir með því að setja, með einhverjum fáeinum pennastrikum, rafbyssur í hendur lögreglunnar. Þið eruð í vandræðum, lögreglan er í vandræðum, þið eruð vanfjármögnuð og vinnuaðstæður eru erfiðar. Ykkur finnst í fljótu bragði að það sé góð lausn og geti létt ykkur lífið að fá rafvopn. Fáið bara rafvopn og prófið þetta. Það er sett lágmarksregluverk um hvernig þetta eigi að virka. Ekki má beita slíkum vopnum gegn sýnilega óléttum konum, þá má væntanlega beita þessu á konur sem eru ekki sýnilega óléttar, alla vega verður að gera ráð fyrir að það sé ekkert passað sérstaklega. Ekki má beita þessu gagnvart fólki sem er í áberandi lélegu líkamlegu ástandi, þá má væntanlega beita þessu á fólk sem er í óáberandi líkamlega lélegu ástandi. Ekki má heldur beita þessu gagnvart fólki sem er í áberandi lélegu andlegu ástandi, það gæti kannski verið þunglyndismeðal að stuða það með rafbyssum. Þetta er líka annar málaflokkur þar sem er hægt að hugsa: Já, þessu er bara beitt á einhverja glæpamenn, bara beitt á eitthvert fólk sem er leiðinlegt við lögregluna og á þetta skilið. Dæmin sýna að það er ekki alltaf þannig. Heimurinn er ekki svona klipptur og skorinn. Lögreglufólk er mannlegt, það gerir mistök og það að vinna hlutina almennilega er til að forðast mistök.
Í þessu máli, líkt og með rafbyssurnar, þá skiptir líka máli hvernig hlutirnir eru unnir og að hugsað sé fyrir öllu. Það er kannski rosalega leiðinlegt en það er þeim mun leiðinlegra að lenda í því að fá hlutina í hausinn og að ákvarðanirnar leiði til skaða.