153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

viðbrögð stjórnvalda við verðbólgu.

[13:34]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Þvert á spár þá byrjar árið á hækkun verðbólgu. Hún er komin í tæplega 10%. Stærstu þættirnir sem hækka, bensín, matvörur og áfengi, eru bein afleiðing ákvarðana ríkisstjórnarinnar. Neytendasamtökin hafa dregið þetta ágætlega saman: Hækkanir ríkisstjórnarinnar á bensíni, búsi og búvörum leiða þessar hækkanir. Allt eru þetta þættir sem ríkisstjórnin gat haft áhrif á en gerði ekki heldur miklu frekar hitt. Hún kynti undir með því að ríða á vaðið í hækkunum og veitti þar með talið sveitarfélögum og fyrirtækjum ákveðna fjarvistarsönnun í sínum hækkunum, eins og við sjáum nú.

En hverjir eru það sem borga? Það eru auðvitað fyrst og fremst heimilin í landinu sem borga brúsann. Við þessum hækkunum var hins vegar ítrekað varað af hálfu launþegahreyfinganna, Samtaka atvinnulífsins og Neytendasamtakanna en á þau var ekkert hlustað hér fyrir jól. Á sama tíma þá fellur ríkisstjórnin frá því að hækka gjöld á fiskeldisfyrirtækin á næsta ári eins og fyrirhugað var. SFS sendi bara eitt bréf og mótmælti og það dugði fyrir ríkisstjórnina. Breiðu bökunum er hlíft en heimilunum ekki. Það er auðvitað ekkert sem kemur hér á óvart. Við hljótum því að spyrja hvort ríkisstjórnin hafi ekki örugglega á fundum sínum rætt um þessa stöðu núna á markaði, hvað hún geti gert fyrir heimilin í landinu, eitthvað sem stemmir stigu til að mynda við síhækkandi verði á matarkörfunni, einum stærsta útgjaldalið íslenskra heimila. Við hljótum að spyrja hvað ríkisstjórnin ætli að gera til að spyrna við verðbólgunni og taka um leið á þeim hluta sem ríkisstjórnin getur raunverulega haft áhrif á.

Hver eru skilaboð ríkisstjórnarinnar til heimilanna í dag? SFS sendi eitt bréf á ríkisstjórnina og hún brást við. Hvað þurfa íslensk heimili að senda mörg bréf til ríkisstjórnarinnar svo að hún bregðist við? Hvert er planið?