153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.

[13:48]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. innviðaráðherra. Nýlega bárust fréttir af því að kostnaður við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hafi hækkað um 50 milljarða, sem er rúmlega 40% hækkun frá því sem áður var áætlað. Málið var útskýrt að meginhluta til með verðlagshækkunum og síðan dýrari útfærslum en ráð var fyrir gert á tveimur framkvæmdum, þ.e. gatnamótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar og hins vegar Sæbrautarstokki. Þessir þrír stokkar sem áætlaðir eru eiga nú að kosta um 54 milljarða og enn er ekki vitað hvert á að beina umferð um Miklubraut á meðan sú framkvæmd er í gangi. Varðandi Sæbrautarstokkinn þá hækkar kostnaður við vegaframkvæmdir við Sæbraut úr 2,74 milljörðum í 17,72 milljarða eða um 15.000 milljónir sem er 650% hækkun frá því að samningurinn var undirritaður. Það er skýrt með því að segja að horfið hafi verið frá framkvæmdum um mislæg gatnamót og að nú sé gengið út frá því að Sæbraut verði lögð í stokk, það sé allt önnur framkvæmd og eftir atvikum mun dýrari en sú fyrri. Nú spyr ég hæstv. innviðaráðherra: Er þessu félagi, Betri samgöngum ohf., í sjálfsvald sett að ákvarða breytingar á framkvæmdum sem undir samninginn falla sem kalla fram 650% kostnaðaraukningu á einstökum verklið? Þekkir hæstv. ráðherra sambærileg dæmi frá uppbyggingarsögu vegakerfisins á Íslandi? Á sama tíma er 10 milljarða niðurskurður áætlaður á framkvæmdahluta samgönguáætlunar til að bregðast við þensluáhrifum.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra þriggja spurninga: Hefur fyrirtækið Betri samgöngur ohf. heimild til að gera svona grundvallarbreytingar án þess að það komi til umræðu í þinginu eða við ráðherra og, ef þetta var rætt við ráðherra, samþykkti hann þessa breytingu sem kallar fram 650% kostnaðarhækkun? Hefur ráðherra séð rekstraráætlun fyrir borgarlínu? Og síðan vil ég að lokum spyrja hæstv. ráðherra: Hver mun njóta tekna af sölu lóða sem verða til vegna umræddra stokkaverkefna?