153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

Suðurnesjalína 2.

[14:00]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka greinargóð svör frá ráðherrunum. Ég tek undir það að þetta frumvarp sem hann er að flytja leysir ekki þann vanda sem fyrir er og þess vegna verð ég aðeins að halda áfram með þetta. Gríðarleg atvinnuuppbygging á Suðurnesjum þar sem landeldi á laxi og silungi eykur umferð um Keflavíkurflugvöll auk náttúrulegrar fjölgunar íbúa kallar á töluvert mikla orku inn á svæðið bara nú þegar. Hvað telur ráðherrann að hægt sé að halda lengi aftur af þeirri uppbyggingu meðan sveitarfélögin ná ekki saman? Þessi 17 ára bið — hvað þolir svæðið margra ára bið í viðbót? Ég myndi halda að það þyldi enga bið.