miðlunartillaga ríkissáttasemjara.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ef hv. þingmaður hefur fylgst með orðum mínum í fjölmiðlum þá veit hann að ég hef ítrekað sagt þar, ekki bara í þessari deilu heldur öllum þeim kjaradeilum sem hafa komið upp frá því ég tók við embætti, að það er alltaf best ef aðilar geta leyst málin sín á milli við samningaborðið. Það er hin eðlilega leið og almenn afstaða mín er sú að stjórnvöld eigi helst ekki að beita sér í slíkum málum.
Ég vil hins vegar í þessu máli rifja það upp að þegar málum er vísað til sáttasemjara þá eru þau þegar komin á erfiðan stað. Það er ekki sjálfgefið að kjaradeilum sé vísað til sáttasemjara. Það er algerlega hægt að ganga til samninga án þess að sáttasemjari komi þar að. En ríkissáttasemjari hefur leitt þessar sáttaumleitanir frá 7. desember síðastliðnum. Hann tekur sjálfstæða ákvörðun um að nýta heimild sína til að leggja fram miðlunartillögu og eftir að hafa skoðað þetta mál út frá minni bestu getu get ég ekki séð betur en að sáttasemjari sé innan þeirra heimilda sem er að finna í lögum.
Það sem ég hef líka sagt mjög skýrt í fjölmiðlum, ef hv. þingmaður hefur hlustað eftir því, er að ef aðilar eru ósammála því mati þá geta þeir leitað til dómstóla og raunar er það nú svo að Efling hefur kært þessa ákvörðun til félagsmálaráðuneytis. Sáttasemjari hefur kært ákvörðun Eflingar um að afhenda ekki félagatalið til héraðsdóms og nýjustu fregnir herma að Samtök atvinnulífsins hafi vísað verkfallsboðunum til Félagsdóms. Mér sýnist því að ýmis stjórnvöld og dómstólar munu hafa ærinn starfa á næstu dögum við að leysa úr þessum deilum, því að þarna er deilt um lagatúlkun.
Ég vil segja það, vegna orða hv. þingmanns, að augljóslega er ég ekki að taka afstöðu til efnis miðlunartillögunnar. Það er algjörlega fráleit túlkun hjá hv. þingmanni. Það sem ég er að taka afstöðu til er að sáttasemjari hafi þessa heimild og hann eigi að vera sjálfstæður í sínum störfum, hann eigi ekki að vera háður afskiptum stjórnmálamanna um það hvernig hann metur stöðuna. Það er alltaf mat sáttasemjara, (Forseti hringir.) sem við sem sitjum ekki við samningaborðið eigum mjög erfitt með að leggja sjálf, hvenær er reynt til þrautar. (Forseti hringir.) Það er alltaf mat sáttasemjara og þeirra sem sitja við samningaborðið.