miðlunartillaga ríkissáttasemjara.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir fyrra svar. Hæstv. forsætisráðherra er búinn að segja í fjölmiðlum að sáttatillaga ríkissáttasemjara standist skoðun. Nú er stéttarfélagið búið að kæra miðlunartillögu ríkissáttasemjara til ráðherra í hennar ríkisstjórn. Er einhver að halda því fram að sá ráðherra muni segja að miðlunartillagan standist ekki skoðun, þegar sjálfur forsætisráðherra, forystumaður í ríkisstjórninni, er búinn að segja að hún standist skoðun? Það er alveg augljóst mál að hér erum við farin að tala um ákveðið vanhæfi ráðherrans til að fjalla um þessa kæru, svo það liggi fyrir. Það er klárt mál að félags- og vinnumarkaðsráðherra getur ekki sagt, hann á mjög erfitt með að segja það, að miðlunartillagan standist ekki skoðun þegar sjálfur forsætisráðherra er búinn að segja að hún standist skoðun. Hér má líka taka fram að hér er samningafrelsi í landinu fyrir stéttarfélög og verkfallsréttur er eina tæki stéttarfélaga til að fá betri kjör. Vissulega er kominn einn samningur frá Starfsgreinasambandinu (Forseti hringir.) en það þýðir ekki að eitt eigi yfir alla að ganga. (Forseti hringir.) Þetta stéttarfélag er í sinni kjarabaráttu og er í henni á sínum forsendum. (Forseti hringir.) Það er alveg klárt mál að forsætisráðherra er þegar búinn að segja sína skoðun og styður þessa tillögu ríkissáttasemjara, bæði að efni og formi.