miðlunartillaga ríkissáttasemjara.
Herra forseti. Við hv. þingmaður skiljum stjórnskipan landsins með gerólíkum hætti. Það sem ég hef sagt er að samkvæmt minni skoðun, takandi fram að ég er ekki lögfræðingur eins og hv. þingmaður, þeir eru nú margir hér á þingi, þá sýnist mér tillagan vera innan þeirra heimilda sem afmarkaðar eru í lögum. Þar með tek ég enga efnislega afstöðu til tillögunnar, augljóslega, ef hv. þingmaður skilur mælt mál, (Gripið fram í.) og í öðru lagi kom það skýrt fram að aðilar eiga að leita til dómstóla. Það er ekki þannig stjórnskipan hér að ráðherra, forsætisráðherra taki afstöðu til þess hvort þetta standist lög. (Gripið fram í.) Augljóslega eru það dómstólar sem eiga síðasta orðið. Það á hv. þingmaður að vita, löglærður sem hann er, og þar liggur málið núna. Við erum í þeirri flóknu stöðu núna að við getum séð þá stöðu fyrir í næstu viku að það verði hafið verkfall, að við bíðum enn niðurstöðu héraðsdóms, að við bíðum niðurstöðu ráðherra um það hvort stjórnsýslukæra verður tekin til efnismeðferðar og að við bíðum niðurstöðu Félagsdóms. (Forseti hringir.) En það verður ekki forsætisráðherra sem úrskurðar í neinu af þeim málum, herra forseti. (Gripið fram í.)