útlendingar.
Forseti. Það er hægt að segja mjög margt um efnisatriði þessa máls og það er í rauninni mjög nauðsynlegt að fara út í hin ýmsu smáatriði þeirra breytinga sem ríkisstjórnin leggur hérna til á lögum um útlendinga. Að mínu mati er hins vegar mikilvægara að tala um pólitíkina í þessu máli fyrst og það er af nokkrum ástæðum. Til að byrja með af því að nánast allar umsagnirnar um þetta mál eru neikvæðar og hafa alltaf verið í gegnum allar útgáfur þessa frumvarps. Samt eru ríkisstjórnarflokkarnir að troða þessu máli inn í 2. umr. sem á að snúast um einstakar greinar og efnisatriði frumvarpsins, það er það sem 2. umr. málsins snýst alltaf um. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta mál kemur hingað inn í þingsal í 2. umr., sem verður að teljast áhugavert út af fyrir sig enda hafa fyrri frumvörp verið einstaklega slæm. Þetta frumvarp er enn þá mjög slæmt, eins og umsagnirnar gefa góða vísbendingu um, samt er búið að setja þetta í 2. umr. En það er líka nauðsynlegt að tala um pólitíkina í þessu máli af því að það er þegar búið að kalla eftir breytingartillögum á frumvarpinu milli 2. og 3. umr. Þetta er það sem sumir ráðherrar og þingmenn segja, að þeir ætli nú að skoða einhverjar breytingartillögur milli 2. og 3. umr. Af hverju erum við að tala um frumvarpið í 2. umr. ef það er ekki búið að leggja fram allar breytingartillögur sem á að leggja fram? Ég skil það ekki. Að lokum er nauðsynlegt að fjalla um pólitíkina í þessu máli út af því sem er fjallað um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, sérstaklega út af stefnunni sem þar er, með leyfi forseta:
„Kerfi og stofnanir sem meta einstaklingsbundnar aðstæður og hagsmuni eiga að vera skilvirk, laga- og regluverk skýrt og mannúðlegt og framkvæmd fullnægjandi. Rýna þarf framkvæmd og stytta málsmeðferðartíma í núverandi kerfi, þannig að tryggja megi hraða og skilvirka afgreiðslu mála í samræmi við flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna og koma í veg fyrir langvarandi óvissu hjá einstaklingum og fjölskyldum.“
Forseti. Ég held að enginn sé ósammála þessum texta. En er það þetta sem frumvarpið gerir? Nei, alls ekki. (Gripið fram í: Jú, jú, jú.) Bara alls ekki. Ef eitthvað er þá lengir það málsmeðferðartíma í vissum tilfellum og eins og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir talaði um áðan þá tekur það sem sagt viku í rauninni frá þeim sem ætla að kæra niðurstöðu Útlendingastofnunar, viku sem þau höfðu til undirbúnings. Vissulega styttir það um viku fyrir kærunefndina (Gripið fram í.) en það tekur frest frá þeim sem eru að framkvæma kæruna til undirbúnings. Þarna er vissulega sjö daga stytting að einhverju leyti en það er líka verið að minnka þau réttindi sem kærandi hefur haft. Almennt séð í stjórnkerfinu hefur kærandi mun meiri tíma en ekki í þessum málaflokki. Þar á að minnka þann tíma eins mikið og mögulegt er til þess að spara tíma hinum megin. Það kemur einungis niður á gæðum. Ef það á í alvörunni að tryggja mannúðlega framkvæmd þá verðum við að hugsa um þau sem er verið að verja réttindi hjá, þau sem eru að sækja hérna um alþjóðlega vernd, að við séum að passa upp á það að við missum engan sem ætti raunverulega rétt á vernd samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og náttúrlega íslenskum lögum. Skilvirknibreytingar geta haft þau óþægilegu hliðaráhrif að gæði minnka. Ef kærufresturinn er styttur þá er undirbúningstíminn til að leggja fram kæru minni og þar af leiðandi eru upplýsingar í málinu ekki nægilega góðar.
Varðandi umsagnirnar þá heyrir það til undantekninga að mál séu afgreidd út úr nefnd þegar allir umsagnaraðilar eru á móti frumvarpinu af efnislegum ástæðum. Því verðum við að velta fyrir okkur hvers vegna það er samt verið að troða frumvarpinu í 2. umr. Jú, það er búið að gefa út ýmsar digurbarkalegar yfirlýsingar um að það sé búið að leggja frumvarpið svo oft fram og það sé búið að fá svo mikla og yfirgripsmikla umfjöllun, eins og við eigum þá einhvern veginn að draga þá ályktun að frumvarpið hljóti að vera orðið gott núna. En umsagnirnar segja okkur að svo sé ekki, allar neikvæðu umsagnirnar. Er þetta af því að umsagnirnar eru ómálefnalegar og pólitískar á einhvern hátt, þannig að það var í rauninni bara hægt að hunsa þær? Komu þær úr einhverri pólitískri átt? Nei. Það er alla vega ekki gerð tilraun til að rökstyðja það að umsögn Rauða krossins eða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna eða allar aðrar umsagnir sem bárust séu eitthvað annað en bara efnisleg gagnrýni á þetta mál.
Það er líka búið að vera að reyna að segja að það sé stjórnlaust ástand en í hvert sinn sem er reynt að draga það upp úr ráðherra eða nokkrum öðrum stjórnarþingmanni nákvæmlega hvað sé stjórnlaust er fátt um svör. Jú, jú, það eru margar umsóknir en það er út af stríði í Úkraínu þar sem stjórnvöld eru að leggja sig fram við að hjálpa fólki, beita meira að segja öðrum greinum í útlendingalögum en venjulega til að hjálpa fólki frá Úkraínu fram hjá hefðbundna ferlinu. Hvert stjórnleysið er nákvæmlega er enn óljóst og enn þá óljósara er hvernig þetta frumvarp á að leysa þetta meinta stjórnleysi. Hér rennur mér dálítið blóðið til skyldunnar að benda á að stjórnvöld, fólkið sem situr venjulega hérna, eiga að stjórna og stjórnleysið sem þau eru að kvarta yfir er augljóslega þá þeirra eigið stjórnleysi, eða hvað? Þeirra eigin vinnubrögð sem þau eru að kvarta yfir. Samt geta þau ekki útskýrt fyrir okkur hvernig þetta stjórnleysi lýsir sér. En er þá bara ekki vandamálið að þau hafa ekki hugmynd um hvað þau eru að gera og þar af leiðandi ríkir stjórnleysi? Eða er þetta stjórnleysi bara uppspuni sem er ekki hægt að rökstyðja með neinu öðru en endurtekningum á því að hér sé stjórnleysi? Aftur: Þetta er bara áhugaverður dómur um þeirra eigin störf. Við förum aðeins betur yfir einstakar umsagnir seinna í þessu öllu. Það eru þingmenn að gera líka sem er vert að fylgjast með.
Annar punkturinn varðandi það af hverju við þurfum að skoða pólitíkina í þessu er einmitt breytingartillögurnar. Stóra spurningin sem þetta skilur eftir er: Af hverju í ósköpunum fór þetta mál út úr nefndinni þrátt fyrir allar neikvæðu umsagnirnar? Við verðum að pæla dálítið alvarlega í því, því að það er óvenjulegt. Píratar sendu málið aftur til nefndar fyrir jól þegar gallarnir voru augljósir en aftur var ekkert gert. Samt örstuttu seinna, eftir að málið fór til 2. umr., þá boða ráðherrar og stjórnarliðar breytingartillögur. Af hverju gerðu þeir það ekki inni í nefnd til þess að nefndin gæti skoðað þessar breytingartillögur og komið með þær hérna inn í þingið til að ræða? Kannski verða þær yfirgripsmiklar og þá er efnið sem við erum að tala um hérna orðið úrelt. Eigum við að ræða það í 3. umr.? Það er ekki tími til þess þá, mjög takmarkaður ræðutími þá. Ef það eru yfirgripsmiklar breytingar þá þarf aðeins meira en 3. umr. fyrir það. Við erum að tala um breytingartillögur sem á að ræða í nefnd áður en málið er tekið til umræðu í þingsal því að hérna eigum við að ræða mál sem eru almennt tilbúin til afgreiðslu, en þetta mál er ekki tilbúið til afgreiðslu. Það er svo augljóst. Eins og ég sagði segjast ráðherrar og þingmenn ætla að skoða einhverjar breytingartillögur. Það þýðir einfaldlega að málið er ekki tilbúið. Til hvers eigum við að vera að ræða efnislega um málið ef það er ekki einu sinni víst að efnisatriði frumvarpsins verði þau sömu? Þýðir það að við eigum að hætta að tala um málið og senda það aftur til nefndar á milli 2. og 3. umr.? Nei, auðvitað ekki. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa ekkert með það að gera að ræna þingið 2. umr. um þetta mál af því að þau geta ekki komið sér saman um einhverjar breytingartillögur gerðar til að koma til móts við allar neikvæðu umsagnirnar. Það sem meira er, ég held að það muni ekki vera gert yfirleitt. Við erum því föst í umræðu um þessi efnisatriði sem snúast, með leyfi forseta, einfaldlega um að henda fólki út á götu.
Þriðja ástæðan er stjórnarsáttmálinn. Málið er í stjórnarsáttmála, eins og ég las upp hérna áðan. Stjórnarliðar eru kannski bara að sætta sig við að þau verða að samþykkja málið af því að það er talað um það í stjórnarsáttmálanum. En þingmenn stjórnarflokkanna hljóta að þurfa að skoða innihald stjórnarsáttmálans og bera saman og skoða hvort frumvarpið nái þeim markmiðum sem þar koma fram, því að ef það er ekki raunin þá erum við að ræða eitthvað allt annað en þau voru búin að samþykkja og kvitta upp á í stjórnarsáttmálanum. Þá erum við að tala um ákveðna sannfæringu samkvæmt stjórnarskrá sem að vissu leyti þingmenn stjórnarmeirihlutans gefa frá sér, því að þegar þau kvitta upp á stjórnarsáttmálann eru þau að kvitta upp á að það sem stendur í honum sé samkvæmt þeirra sannfæringu. Gott og blessað, en þá er eðlilega gott að framfylgja því. En ef þetta er eitthvað annað en stendur þar þá eru þau ekki bundin af stjórnarsáttmálanum í þessu máli.
Allt þetta gerir það að verkum að við verðum að ræða pólitíska sjónarhornið í þessu máli. Það er staðreynd sem við vitum öll hérna að það er ekki hægt að klára afgreiðslu á neinu máli fyrr en það er búið í 2. umr. vegna þeirrar einföldu staðreyndar að hún getur verið óendanleg. Við vitum líka hvernig kaupin á eyrinni gerast almennt séð; ég geri þér greiða og þú gerir mér greiða, og allt svoleiðis. Þannig er það í þessari ríkisstjórn og þannig gerist það almennt á þessu þingi; þú hleypir þessu máli í gegn og við fáum hin málin í gegn. Gott dæmi um það var t.d. á síðasta kjörtímabili, það var mjög áhugavert eiginlega, þar sem mjög mikilvægt mál lokaðist inni á bak við þinglokasamninga. Það var búið að segja að öll þessi mál yrðu kláruð og öll þau sem ekki voru komin úr nefnd yrðu bara áfram í nefnd, við myndum klára hin. Svo spurðum við í stjórnarandstöðunni: Bíddu, fyrirgefið, þarf ekki að klára þetta mál þarna, er það ekki dálítið nauðsynlegt til þess að það sé hægt að gera ákveðna hluti? Það ruku allir upp til handa og fóta: Jú, það er alveg rétt. En til að losa það mál út úr lok lok og læs, út úr nefndinni, þá hefðu allir hinir ráðherrarnir þurft að fá eitt mál út líka. Það hefði ekki dugað að einn ráðherra fengi sitt mál, allir hinir hefðu þurft að fá það líka. Athugið að hérna var stjórnarandstöðunni alveg sama hvort mikilvæga málið sem var lokað inni mátti fara í gegnum þingið. Það var ríkisstjórnin sem lokaði málið inni og tafði það. Það er merkilegt stundum hvernig svona málþóf virkar þegar það er ríkisstjórnin sem er með dagskrárvaldið og ræður hvaða mál fara á dagskrá en lokar þau líka inni sjálf og tefur, mjög áhugavert.
Ef við pælum bara í þessum pólitíska kjarna málsins þá erum við með neikvæðar umsagnir, við erum með boðaðar breytingartillögur, við erum með stjórnarsáttmálann, sem tvímælalaust skiptir máli í þessu samhengi, og þá komumst við að þeirri einföldu niðurstöðu að VG og Framsókn hafa fengið eitthvað í skiptum fyrir það að þvælast ekki fyrir í þessu máli. Þau eru búin að sætta sig við orðinn hlut og yfirlýsingar þeirra um breytingartillögur munu annaðhvort enda í innihaldslausum fegrunaraðgerðum, kannski orðalagsbreytingum eða einhverjum íslenskulagfæringum, einhverju svoleiðis, eða bara nákvæmlega engum breytingum. Þá er spurningin: Hvað fengu þau fyrir að hleypa þessu máli í gegn? Eigum við ekki rétt á að vita það? Á þjóðin ekki rétt á að vita hvað VG og Framsókn seldu fyrir þetta mál? Hvað kostar það VG og Framsókn að henda útlendingum á götuna, svo ég bara tali grjótharða og beinskeytta íslensku? Um það snýst þetta mál. Þegar allt kemur til alls þá er það kjarni þessa máls. Það kom fram í nefndarvinnunni. Ég mætti á einn nefndarfund þar sem var verið að tala um þetta í lok vikunnar í upphafi árs. Þar kom fram að tilgangur greinarinnar um að hætta þjónustu við fólk væri bara að hræða það burtu; farðu eða þú endar á götunni, ekki koma eða þú endar á götunni. Svo er fullt af undanþágum sem eru pínu óljósar. Þú ert með undanþágu ef þú ert barn eða tengdur börnum eða vegna fötlunar og ýmislegs annars en síðan er líka undanþága frá undanþágunni ef þú ert ekki samvinnuþýður og það er pínu óljóst hvort það trompi hitt. Þannig að þegar allt kemur til alls þá eru það í rauninni bara ungir einstæðir karlmenn sem er verið að hóta með þessu, það er alla vega það sem er verið að segja. Hvort það verði þannig í praxís er svo ómögulegt að segja því að við vitum ekki hvort trompar hitt, undanþágan eða hvort viðkomandi eða einhver tengdur viðkomandi sé ósamvinnuþýður og kannski er foreldri hent úr landi en ekki barni en samt á að tryggja það að börn eða aðstandendur þess séu ekki háð þjónustuskerðingu. Og ef svo er eru þetta örfáir aðilar í rauninni sem standa eftir, eru út undan, sem er verið að vesenast með. Hvort það er svona höfum við svo ekki hugmynd um því það er ekki nægilega skýrt.
Þetta er það sem þetta frumvarp fjallar um efnislega, að henda fólki á götuna. Það fjallar ekki um skilvirkni eða aðlögun að breyttum aðstæðum til þess að passa upp á fólk sem er í raunverulegri neyð samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna. Það er búið að sýna að misnotkun á kerfinu er í lágmarki, þ.e. bersýnilega tilhæfulausar umsóknir eru brotabrot af fjöldanum sem sækir um og tekur líka miklu styttri tíma að afgreiða. Það er búið að gera reglugerðarbreytingu sem afgreiðir þær umsóknir hratt og skilvirkt. Það er búið að leysa það vandamál, þannig að það er ekki hluti af þessu frumvarpi. Markmið þess er sem sagt að verndarkerfið ráði við að afgreiða þær umsóknir sem berast á mannúðlegan og skilvirkan hátt. Það er það sem þau segja. En hvernig gera tillögurnar í frumvarpinu það að verkum nákvæmlega? Þær gera það bara alls ekki. Það er ekki hægt að lesa í gegnum þetta frumvarp og finna samsvörun við það sem þau segja að sé markmiðið og skilja tillögurnar þannig að þær skili því markmiði á einhvern hátt. Við sjáum ekki hvernig sá hópur umsækjenda sem á tvímælalaust rétt á vernd, alþjóðlegri vernd, fær að vita það fyrr en seinna. Frumvarpið er ekki að breyta neinu um það svo ég sjái. Við sjáum ekkert um það hvernig sá hópur sem er hafnað fær að vita það fyrr en seinna. Það er engin greining á því hvernig þessi grein hefur áhrif á þann hóp sem hefur tvímælalaust rétt á að fá alþjóðlega vernd og á hinn hópinn sem fær höfnun, fær hana ekki, þótt viðkomandi sé ekki endilega með tilhæfulausa umsókn, bara uppfyllir ekki öll skilyrði af einhverjum öðrum ástæðum sem eru stundum mjög skrýtnar. Við höfum séð ýmis dæmi um það í fjölmiðlum á undanförnum árum. Það eru áhugaverð dæmin sem hafa komið upp í fjölmiðlum og stjórnvöld hafa sagt um: Jú, eiginlega er þetta undantekningardæmi sem hefði átt að vera á þann hátt að viðkomandi hefði átt að fá vernd — og fólki er síðan í kjölfarið veitt vernd. Nær þetta frumvarp yfir þann hóp þannig að hann sé ekki einhvern veginn á skjön, með hótun um að vera vísað á brott þangað til stjórnvöld segja: Nei, fyrirgefið, þetta er undantekningartilvik sem á ekki við og þau eiga í raun og veru að fá vernd? Ekkert svoleiðis.
Staðan á þessu frumvarpi er því sú að einhverjir í ríkisstjórninni boða breytingartillögur án þess að segja hverjar þær eiga að vera. Það væri því eðlilegast að nefndin tæki þetta mál til sín aftur og fengi þær breytingartillögur á borð nefndarinnar til þess að geta skoðað þær, til þess að geta fengið álit umsagnaraðila á þeim, til þess að það sé hægt að ræða þær efnislega við 2. umr. þessa máls eins og á að gera. Ég býst hins vegar við að þetta tal um breytingartillögur sé fyrirsláttur til að klára 2. umr. málsins og troða því í gegnum þingið, sama hvað umsagnaraðilar segja um málið, sama hvað fólki finnst raunverulega um málið, af því að það er búið að selja sannfæringu sína fyrir málinu í staðinn fyrir eitthvað annað og afsakar það með einhverri óljósri tilvísun um að það eigi að afgreiða einhvers konar svona mál af því að það stendur í stjórnarsáttmálanum. En ég meina, það var t.d. ekkert um rafbyssur í stjórnarsáttmála en það átti samt að gera fyrirvara og ræða málið á þingi og alls konar. Það var síðan ekki gert og ráðherra kvittaði bara upp á reglugerð um rafbyssur. Þannig að, afsakið, ég treysti hvorki ráðherra málaflokksins né ríkisstjórninni hvað þetta varðar. Það er ekkert að marka sem þau segja í þessum málum. Þau segja fullt af fallegum orðum o.s.frv., og svo bara gerist eitthvað allt annað. Framkvæmd útlendingalaganna er dálítið þannig. Þetta er, eins og hefur komið fram í máli hv. þm. Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, samansafn af lagfæringum, eða í rauninni gölluðum leiðréttingum að mati Útlendingastofnunar vegna mála sem þau hafa tapað á undanförnum árum. Þau vilja hafa getað hent fólki á götuna. Þar af leiðandi ætla þau að gera það löglegt, hvort það verði siðlegt eða eitthvað svoleiðis er allt annað mál.
Við erum því föst hérna að ræða hinn pólitíska raunveruleika þessa máls og þau efnisatriði sem allsherjar- og menntamálanefnd afhendir þinginu inn í 2. umr. máls sem er ekki tilbúið.