útlendingar.
Frú forseti. Sjaldséðir hvítir hrafnar — við sáum hér stjórnarliða reka nefið inn í sal, birtist hér í gættinni. Það gerist ekki oft þessa dagana í þessari umræðu. Þar var mætt hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, framsögumaður meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar í þessu frumvarpi. Hún hlustaði á hv. þm. Björn Leví Gunnarsson og hafði eitthvað við það að athuga sem hann sagði því hún mótmælti sumu, en hún gerði það bara í gættinni. Ég hefði búist við að hv. þingmaður myndi nýta sér þessa pontu sem við höfum hér til að skiptast á skoðunum frekar en að útkljá þetta með pískri úr hliðarsal. Eða erum við í alvöru komin á þann stað, frú forseti, að stjórnarliðum þyki nægja að segja þingmönnum svona úr fjarska eða í gegnum fjölmiðla að þeir séu ósammála en virði þessa málstofu ekki viðlits? (Forseti hringir.) Virði þingið ekki nógu mikið til að eiga orðastað við þingmenn í pontu sem er tilgangurinn með þessu apparati hérna.