153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:12]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég var erlendis í síðustu viku og missti af umræðunni hérna og var að flytja fyrstu ræðu mína í þessu máli. Ég var vongóður um að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, formaður nefndarinnar, væri að koma í andsvar um það sem hún var svona ósátt við í málflutningi mínum en þetta virðist einmitt vera afstaða stjórnarliða, það á ekkert að svara neinum spurningum í þessum umræðum, en þær eru rosalega margar miðað við þær forsendur sem frumvarpið setur upp. Það á að bæta skilvirkni. Hvernig? Getið þið stafað það fyrir okkur af því það er hvergi að finna í frumvarpinu né í nefndarálitinu bara eina lýsingu, einfalda lýsingu á því hvernig þetta bætir einhverja skilvirkni og þá fyrir hvaða hóp. Fyrir fólkið sem hefur raunverulega rétt á vernd, er það sá hópur sem fær skilvirkni? Eða er það hópurinn sem er verið að henda í burtu — hverjir? Ég sé ekkert svoleiðis. (Forseti hringir.) Í umræðunni myndi maður búast við því að svoleiðis spurningum væri svarað (Forseti hringir.) og þau einu sem geta svarað því eru ríkisstjórnarflokkarnir og þingmenn þeirra. Ég vil fá þau hingað.