153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:13]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þingmönnum, kollegum mínum hérna. Það sem ég er að gera í mínum ræðum í þessu máli er bara nokkuð alvarlegt. Ég er að væna þingmenn meiri hlutans um að ætla sér að samþykkja frumvarp sem gengur gegn mannréttindum, sem minnkar skilvirkni, sem brýtur á réttindum barna. Þetta er ég að segja berum orðum hérna uppi í pontu. Ég er að segja það við ykkur, hv. þingmenn.

Ég veit að fólk er að hlusta þarna úti. Ég fæ skilaboð og viðbrögð við því. Það er gott og vel og það er frábært því almenningur á líka rétt á að vita hvað er í gangi hérna. En ég efast ekki um að almenningur vill líka fá svör og skýringar á þessu: Hvernig má það vera að þið séuð að samþykkja eitthvert frumvarp sem brýtur á réttindum barna? Er það rétt? Hver er afstaða ykkar? Hvers vegna eruð þið að samþykkja þetta? Ég er sannfærð um það að ég er ekki ein um að vilja gjarnan fá svör við því. Ég hvet hv. þingmenn meiri hlutans til að koma hingað og taka þátt í þessari umræðu með okkur.