153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:16]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Þessi ósiður stjórnarliða að skiptast á skoðunum við þingmenn í gegnum fjölmiðla er nú að verða dálítið vandræðalegur, sérstaklega fyrir okkur sem þykir dálítið vænt um þennan vettvang hér sem stað til að skiptast opinberlega á skoðunum. Þegar málið var hér til 1. umr. t.d. þá kjaftaði hver tuska á hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra í fjölmiðlum. En þegar við báðum hann um að mæta í sal og gera grein fyrir þeim skoðunum sem hann var að lýsa í fjölmiðlum og fá jafnvel á sig andsvör um þær þá átti hann ekki heimangengt. Síðan við 2. umr. báðum við ráðherrann um að mæta til umræðunnar. Ekki varð hann við því; mætti í óundirbúinn fyrirspurnatíma fyrir helgi þar sem hann var spurður hvað felst í þessum breytingum sem þingfólk Vinstri grænna hefur talað um að þurfi að koma fram á þessu máli. Hann vildi ekki segja það.

Þau tala um að þau vilji breytingar, sem ég held reyndar að sé einhver þykjustuleikur, (Forseti hringir.) en ef það væri eitthvað á bak við það þá ættu þau að koma hingað og segja okkur hvað felst í þessum breytingum sem leggja á fram og hvort dómsmálaráðherrann, sem segir í fjölmiðlum í dag að hann sjái engar breytingar gerast, (Forseti hringir.) sé þeim sammála eða hvort þetta sé bara eitthvert djók.