153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:19]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Fyrst sérstaklega er minnst á þingmenn og ráðherra Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, eða Hreyfingarinnar –framboðs, eins og hún er stundum kölluð í dag, þá langar mig að lýsa yfir vonbrigðum mínum með það að flokkurinn hafi haldið lokaðan fund um helgina með félagsmönnum sínum til þess væntanlega að útskýra afstöðu sína gagnvart þessu máli fyrir sínu fólki. Það er gott og vel, það er frábært, en okkur hér langar líka til að vita hver afstaða ykkar er til þessa máls.

Eruð þið raunverulega sammála því að það sé í lagi að brjóta á réttindum barna til að tryggja að það sé alveg örugglega enginn að svindla á þessu kerfi? Eruð þið í alvörunni á þessari skoðun? Mig langar svo að tala við ykkur. Ég biðla enn og aftur til hv. þingmanna meiri hlutans að koma hingað í þingsal og ræða þetta mál við okkur vegna þess að þetta er bara mjög dularfullt. Það er mjög undarlegt að það standi til að afgreiða þetta mál sem landslög á Íslandi.