útlendingar.
Forseti. Ég verð að koma hingað upp og taka undir þetta, mér þykir þetta ferlega furðulegt allt saman, þetta leikrit sem stjórnarliðar og ríkisstjórnin eru að stilla upp þar sem fólk er að koma með einhver mismunandi skilaboð inn í fjölmiðla og eiga einhverja umræðu þar sem á réttilega heima hér. Við erum hér í 2. umr. um stjórnarmál og heyrum í fjölmiðlum frá einhverjum lokuðum fundum þingflokks Vinstri grænna að ætlunin sé að setja mikilvægar breytingar inn í málið; að okkur sé óhætt að hætta að tala hér í 2. umr. af því að málið fari inn í nefnd á milli 2. og 3. umr. og að þar verði einhverjar breytingar. Svo kemur eitthvert viðtal við dómsmálaráðherra í fjölmiðlum þar sem hann segir: Nei, nei, það verða engar breytingar. Ef eitthvað þá verða það einhverjar smávægilegar orðalagsbreytingar.
Af hverju kemur þetta fólk ekki í þingsal og á samtal við okkur? Þetta er svo mikið „diss“, forseti. Þetta er svo mikið „diss“ við þingið. Það er ekki vottur af — hvaða orði er ég að leita að — virðingu fyrir umræðunni sem á sér stað hér, (Forseti hringir.) þessari lýðræðislegu, þinglegu umræðu sem á sér stað um þetta mál. Ég óska þess að stjórnarliðar komi hingað og segi okkur hvað þeir eru að hugsa í stað þess að blaðra þvers og kruss í fjölmiðlum með einhver loðin loforð til almennings.