153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[15:29]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Ég hætti í minni síðustu ræðu þar sem ég ætlaði að byrja að fjalla um umsögn Rauða krossins á Íslandi um 2. gr. frumvarpsins sem er kannski við fyrstu sýn sakleysislegasta ákvæði frumvarpsins þar sem kveðið er á um sjálfkrafa kæru tiltekinnar tegundar mála til kærunefndar útlendingamála og 14 daga greinargerðarfrest. Í umsögn Rauða krossins segir, með leyfi forseta:

„Hér er lagt til að ákvarðanir Útlendingastofnunar um synjun á efnislegri meðferð á grundvelli 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 (útl.) sæti sjálfkrafa kæru til kærunefndar útlendingamála nema umsækjandi óski þess sérstaklega að kæra ekki. Þá er gerð sú krafa að greinargerð vegna kæru berist kærunefnd útlendingamála innan 14 daga frá birtingu ákvörðunarinnar.“

Ég vek athygli á því sem ég nefndi í minni fyrri ræðu að í fyrstu útgáfu þessa frumvarps átti að kveða á um að ef greinargerðin bærist ekki innan greinargerðarfrests myndi málið falla niður. Fallið hefur verið frá því en engu að síður kveður ákvæðið á um að greinargerðin skuli berast innan 14 daga og það verður áhugavert að sjá hvernig það verður túlkað í framkvæmd. Það er sannarlega ekki verið að einfalda störf kærunefndarinnar með þessari breytingu. Áfram heldur, með leyfi forseta:

„Samkvæmt framangreindu munu umsækjendur í málum er falla undir 36. gr. útl. (að meginstefnu svokölluð Dyflinnar- og verndarmál) ekki eiga kost á að nýta sér almennan 15 daga kærufrest til ákvörðunar um framhald máls, en í framkvæmd hafa umsækjendur gjarnan nýtt sér umræddan frest. Tvenns konar ástæður liggja að jafnaði því að baki.

Annars vegar eru ákvarðanir Útlendingastofnunar birtar og afhentar umsækjendum á íslensku og ekki þýddar á önnur tungumál en gera má ráð fyrir að lengd ákvörðunar í málum af þessu tagi sé 10–20 blaðsíður að jafnaði.“

Innskot: Á íslensku. Áfram heldur, með leyfi forseta:

„Birting ákvörðunar fer nú fram á þann veg að ákvörðunin er ekki birt fyrir umsækjanda sjálfum, heldur send löglærðum talsmanni hans í gegnum forritið Signet Transfer en hvorki lögregla né fulltrúi Útlendingastofnunar sér um framkvæmd birtingar.“

Hér verð ég að fá að skjóta inn. Þegar ég vann við þennan málaflokk, þá sem lögfræðingur á vegum Rauða krossins, sem talsmaður umsækjenda um alþjóðlega vernd, var ákvörðunin birt með formlegum hætti þannig að umsækjandi og talsmaður voru boðuð til Útlendingastofnunar og ákvörðunarorðin lesin upp að túlki viðstöddum. Þannig gat umsækjandi a.m.k. skilið efnislega niðurstöðu málsins þó að það hafi ekki verið farið í að þýða alla ákvörðunina og það var lagt í hendur talsmanns viðkomandi að útskýra ákvörðunina og forsendurnar fyrir umsækjanda. Í dag er þetta ekki þannig. Í dag er þetta ekki svona. Í dag er það þannig eftir að Rauði krossinn hætti þessari þjónustu, eftir að samningur var ekki framlengdur við Rauða krossinn, sem er gríðarlega mikil skerðing á réttarvernd þessa hóps og er í boði hæstv. dómsmálaráðherra líkt og þetta frumvarp, eftir að Rauða krossinum var sparkað úr þessu hlutverki, var þessari framkvæmd beitt með þeim hætti að Útlendingastofnun sendir einfaldlega ákvörðunina í málinu í rauninni í tölvupósti, sendir talsmanni í tölvupósti tilkynningu um að ákvörðunin sé inni á þessu forriti sem heitir Signet Transfer, þar sem þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og annað til að sækja ákvörðunina. Umsækjandi er því í rauninni, hvað á að segja, upp á talsmann sinn kominn um að fá að vita af ákvörðuninni, að hún hafði verið birt, hver niðurstaðan var og enn sem fyrr hver rökstuðningurinn var fyrir þessu. Þetta þýðir það — segjum að almennt sé fólk að taka sér mánuð í sumarfrí á ári. Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru kveðnar upp allan ársins hring. Segjum að talsmaður viðkomandi sé bara í sumarfríi, bara þarna — nú erum við bara að tala um kerfið eins og það er í dag án þessara breytinga sem er verið að leggja til þarna — þá er það þannig að umsækjandi gæti misst af þessu. Þetta er framkvæmd sem er í skoðun um hvort hún sé hreinlega lögleg. Það sem síðan gerist er að það er greinargerðarfrestur. Nú er verið að lögbinda greinargerðarfrestinn í 14 daga. Hann er ekki lögbundinn í dag. Í dag er hann sjö virkir dagar sem er u.þ.b. tíu dagar að jafnaði, eða meira ef það eru leyfisdagar þar, og hann er samkvæmt starfsreglum kærunefndarinnar. — Nú er ég enn og aftur búin með tíma minn en ég bið forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.