útlendingar.
Frú forseti. Ég ætla að snúa mér aftur að efni málsins. Það er endalaust búið að tönnlast á því í meðferð þessa frumvarps að það muni auka skilvirkni kerfisins. Ég held að kollegi minn, hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, sé hins vegar búin að benda á þó nokkur dæmi og mun eflaust benda á fjölmörg dæmi þess að skilvirknin muni ekki aukast heldur minnka. En það er eflaust ekkert hlustað á það frekar en annað.
Í stað þess að horfa á frumvarpið sjálft og reyna að finna út hvar hægt er að bæta skilvirknina, þá virðist ekkert vera talað um það. Hins vegar, ef horft er á það hvernig skilvirkni Útlendingastofnunar er í heild, þá kemur ýmislegt í ljós. Ef hæstv. forsætisráðherra Katrínu Jakobsdóttur er t.d. annt um að hlutir séu afgreiddir hratt hér, þá er mikilvægt að við horfum á þetta í heild, ekki bara út frá hælisleitendum heldur almennt hvernig þessi stofnun vinnur. Hafandi komið að þeirri vinnu að bæta skilvirkni og leiða t.d. stafræna umbyltingu nokkurra stórra fyrirtækja og stofnana, þá er ekkert mjög óalgengt að sjá svona lagað, sér í lagi í umhverfi þar sem er ekkert verið að reyna að laga vandamálin sjálf heldur verið að horfa í rangar áttir.
Mig langaði bara að gefa fólki smá innsýn inn í hversu skilvirkir hlutir eru og þessar upplýsingar eru beint af vef Útlendingastofnunar. Ef sótt er um dvalarleyfi fyrir aðstandanda Íslendings eða aðstandanda EES-búa þá er í augnablikinu verið að afgreiða umsóknir um slíkt frá því í júlí 2022. Það er að verða kominn febrúar á morgun og verið er að afgreiða umsóknir sem komu um mitt síðasta ár. Með öðrum orðum, ef ég hefði verið búsettur erlendis eða giftur erlendum aðila sem kemur frá svæði utan EES og ég flyt hingað heim, þá hefur alla vega tekið rúma sex mánuði að afgreiða þá umsókn, þrátt fyrir að ég hafi borgað 16.000 kr. Meira að segja með það að endurnýja slíkt dvalarleyfi er verið að horfa á nóvember 2022.
Sama gildir um atvinnuleyfi. Verið er að afgreiða atvinnuleyfi fyrir einhvern utan EES frá júlí 2022. Ég hef talað við fjölmörg frumkvöðla-, tækni- og nýsköpunarfyrirtæki hér á landi sem segja að það sé ótrúlegt að það skuli geta tekið rúma sex mánuði að afgreiða atvinnuleyfi. Þar borgarðu 45.000 kr. Ef þú ætlar að fá svokallaða vistráðningu eða það sem, með leyfi forseta, kallast „au pair“, þá er núna verið að afgreiða umsóknir frá ágúst 2022. Og ef þú sækir um ríkisborgararétt þá borgarðu 27.000 kr. fyrir og í dag er verið að afgreiða umsóknir frá apríl 2022.
Já, frú forseti, ég held að það þurfi að fara í allsherjaruppskurð á þessari stofnun til að tryggja að hægt sé að veita þar þjónustu á skilvirkan hátt, en ekki bara henda í okkur frumvörpum sem hafa ekkert með skilvirkni að gera (Forseti hringir.) heldur bara það að vilja framkvæma mannréttinda- og stjórnarskrárbrot á fólki í neyð.