útlendingar.
Forseti. Eins og ég nefndi hérna í fyrstu ræðunni þá er þetta í fyrsta sinn sem frumvarpið kemur í 2. umr. Ástæðan fyrir því er kannski að fyrri útgáfur þessa frumvarps fengu mjög neikvæðar umsagnir og stjórnarliðar einfaldlega treystu sér ekki í það verkefni að ræða málið í þingsal, enda er það mjög erfitt þegar frumvarpið er eins lélegt og raun ber vitni. Í þetta skipti virðist markmiðið sett þrátt fyrir slæmar umsagnir, ákveðið að setja hausinn undir sig og trukka þessu í gegn, bara þola neikvæðu umfjöllunina og neikvæðu umsagnirnar og gera þetta samt.
Það er dálítið áhugavert að átta sig á því, því að ekki eru stjórnarliðar að koma hérna til að ræða málið heldur flýja þau út í öll horn og króka og kima, koma hingað kannski til að ná í einhverja tösku eða eitthvað svoleiðis og segja: Nei, ósammála. Við erum í dálítið skringilegum aðstæðum akkúrat eins og er. Það er sem sagt búið að ákveða að þetta sé slæmt frumvarp, umsagnir eru lélegar en við ætlum samt að gera þetta.
Eins og er búið að koma hérna aðeins inn á og útskýra er þetta ferli dálítið viðkvæmara en svo að það sé hægt að líta þannig á að hingað komi bara einhverjir útlendingar að sækja um eða svindla á kerfinu eða eitthvað svoleiðis. Það eru hérna ýmsir hópar sem eru í rosalega erfiðri stöðu. Tökum dæmi vegna breytingarinnar um að setja fólk á götuna eftir 30 daga, að þá missi það þjónustu, hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir tók dæmi áðan um Chile. Tökum mjög nærtækt dæmi sem er hópur sem býr á Íslandi núna og er frá Íran. Það er ekki hægt að senda þetta fólk til Írans. Við erum ekki með neinn samning um móttöku flóttafólks, umsækjendur um alþjóðlega vernd hérna á Íslandi, að Íran taki við þeim aðilum. Og af hverju í ósköpunum ættum við að vilja senda fólk til Írans miðað við ástandið þar, í alvöru? Það er talað um að það eigi að fjarlægja þjónustu við fólk sem er búið að fá synjun eftir umsagnarferli og kærunefnd en svo getur það ekkert farið, það hefur engan stað að fara á, það er ekki hægt að senda það aftur til Írans, íslensk stjórnvöld geta það ekki, þau geta ekki tekið viðkomandi og skilað honum til Þýskalands eða eitthvað svoleiðis. Það má ekki, það væri mjög skrýtið. Íslensk stjórnvöld geta ekki tekið viðkomandi og skilað alla leið til Írans, það væri enn brjálæðislegra. Hvað þá? Þá er verið að segja að þessi viðkomandi aðili eigi einfaldlega að forða sér sjálfur af því annars fer hann á götuna. Er það í alvörunni það sem við viljum gera, að fólk sem virðist ekki uppfylla einhver þröng skilyrði, fellur ekki undir alþjóðlega vernd, kemur frá Íran, miðað við einmitt ástandið þar, þurfi bara að þola það að vera sent á götuna, það séu skilaboðin okkar til fólks sem kemur frá Íran hingað? Ég get alla vega ekki séð að það sé eitthvað sem stjórnarliðar hafa neitt sérstaklega mikinn áhuga á að tala um, enda eru þau ekki á svæðinu og bara láta sig hverfa.
Mig langar til að benda aðeins á að það hafa verið breytingar á undanförnum árum á lögum um útlendinga. Það hafa meira að segja verið gerðar reglugerðarbreytingar sem eru pínulítið vafasamar þegar allt kemur til alls en þær varða einmitt þessar bersýnilega tilhæfulausu umsóknir. Til að hafa það algerlega í huga og til hliðsjónar erum við alls ekki að tala um fólk sem er með bersýnilega tilhæfulausar umsóknir. Það er búið að setja reglugerðarbreytingu til að þær umsóknir verði afgreiddar. Við erum alltaf að tala um fólk sem hefur, miðað við mat stjórnvalda á Íslandi, einhver rök fyrir því að vera umsækjendur um alþjóðlega vernd, er ekki með bersýnilega tilhæfulausar umsóknir. Við skulum hafa það í huga þegar við erum að ræða þetta frumvarp að það snýst um þann hóp en ekki um hópinn sem á alls ekki við hérna með þessar bersýnilega tilhæfulausu umsóknir, þetta snýst um hópinn sem er ekki með bersýnilega tilhæfulausar umsóknir. Hvernig það síðan skiptist innan þess hóps, hvaða ákvæði og lagabreytingar virka á hvaða hóp fyrir sig, (Forseti hringir.) fólkið sem á rétt og á ekki rétt eða fellur einhvers staðar þarna á milli, hvort það eru konur, börn eða veikt fólk eða hvernig það er, (Forseti hringir.) það er bara mjög óljóst. Eina leiðin til að við fáum eitthvað augljósara (Forseti hringir.) um það hvað stjórnvöld eru að meina með þessu er að fá þau til að koma og tala við okkur. (Forseti hringir.) Eða eins og þetta ætti í rauninni að vera með þetta mál, (Forseti hringir.) það ætti enn að vera inni í nefnd og þar ættum við að fá að sjá breytingarnar (Forseti hringir.) sem er verið að stinga upp á til að hægt væri að ræða þetta af heilum hug í þingsal.
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna þingmenn á að virða ræðutíma.)