153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:34]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég kom hingað upp þegar ég sá hv. þingmann í ræðustól af þeirri ástæðu að við sitjum saman í fjárlaganefnd og kannski í samhengi við þann málflutning sem ég var með í ræðu minni um þetta mál, þar sem ég var að lýsa furðu minni og vonbrigðum með það að þau fimm ár sem þetta frumvarp hefur í einhverjum myndum verið hér til meðferðar inni í þingsal þá hafa ráðherrar ríkisstjórnarflokkanna bent hver á annan. Dómsmálaráðherra talar um að jú, vissulega þurfi að skoða vinnuréttarlöggjöfina, en það sé jú hjá félagsmálaráðherra. Ráðherra nýsköpunarmála er núna að tala um aukin réttindi fólks til að koma hingað til lands í tengslum við ákveðnar greinar og sérfræðistörf.

En spurningin lýtur sem sagt að því — af því að við erum nú að ræða útgjöld og kostnað, fjárfestingar til lengri og skemmri tíma o.s.frv., inni í fjárlaganefndinni — ég er svo sannfærð um það að ríkisstjórnarflokkarnir þrír hafa dregið það árum saman að skoða stóru myndina, skoða heildarsamhengið, að þau leggi ekki fram heildstæða stefnu einfaldlega bara í innflytjendamálum — ólíkir hópar innflytjenda sem hingað sækja, vitaskuld á ólíkum forsendum en allt helst þetta í hendur, en þau eru hér með einhvern bútasaum og tala um þetta sem einn anga málsins og svo komi eitthvað annað einhvern tíma seinna sem við vitum ekkert um af því að í öll þessi ár hafa þau talað með þeim hætti en hafa ekkert gert — hvort þingmaðurinn líti þau mál sömu augum og ég, að hér sé í reynd að verða til mikill kostnaðarauki í málinu sem ríkisstjórnarflokkarnir sjálfir bera mikla ábyrgð á með því að geta ekki nálgast málaflokkinn heildstætt og geta ekki mótað sér heildarsýn og heildarhugmyndafræði í málaflokknum, sem ég held reyndar að stafi af því að þessir þrír flokkar geta ekki komið sér saman um það hver heildarstefnan eigi að vera.